Lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur í 7 mánuði!

 





Nær allir launþegar landsins hafa fengið verulegar launahækkanir á árinu.En aldraðir og öryrkjar hafa ekki fengið eina krónu í hækkun í kjölfarið. Lágmarkslaun hækkuðu um 14,5% 1.mai á þessu ári en lífeyrir aldraðra og öryrkja hjá almannatryggingum hefur ekki hækkað um eina krónu síðan.Þvert á móti hefur ríkisstjórnin fryst lífeyri aldraðra og öryrkja í tæpa 7 mánuði.Þessi framkoma stjórnvalda er fyrir neðan allar hellur.Það er eins og það sé kreppa í landinu.Það hafa orðið meiri almennar launahækkanir á þessu ári en gerst hefur í langan tima en samt fá lífeyrisþegar engar kjarabætur í kjölfar þessara launahækkana.Stjórnvöld láta sér sæma að níðast á öldruðum og öryrkjum.
 
Mismunun- mannréttindabrot
 
Hvernig geta stjórnvöld réttlætt það að  halda lífeyri aldraðra og öryrkja niðri á sama tíma og kjör allra annarra í þjóðfélaginu hækka verulega. Þetta er gróf mismunun.Þetta er hreint mannréttindabrot.Að sjálfsögðu á lífeyrir að hækka sanhliða hækkun launa enda beinlínis lögbundið Og það virðist engu breyta hjá stjórnvöldum þó þeim sé bent á,að aldraðir,sem hafa verst kjörin,hafi ekki nægilega mikið til framfærslu,Samt hreyfa stjórnvöld sig ekki. Þau segja aðeins að þau ætli að hækka lífeyri næsta ár.Það er lítið gagn í því á þessu ári,sem gerast mun á næsta ári.En auk þess er sú hækkun,sem stjórnvöld boða næsta ár alger hungurlús. Eldri borgarar sætta sig ekki við neitt minna en sömu hækkun og varð á lágmarkslaunum,þ.e. 14,5% hækkun frá 1.mai.Það verður enginn afsláttur veittur á þeirri kröfu. Þessi krafa er sanngjörn og eðlileg.
Kjaragliðnun stóraukin!


Þegar laun hækka eins og gerst hefur á þessu ári en lífeyrir hækkar ekki er það nefnt kjaragliðnun. Lífeyrir dregst aftur úr launum. Það var mikil kjaragliðnun á tímabilinu 2009-2013 (krepputímanum). Stjórnarflokkarnir,Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, lýstu því báðir yfir fyrir þingkosningarnar 2013 að þeir ætluðu að leiðrétta lífeyri aldraðra vegna þessarar kjaragliðnunar.Þetta voru stærstu kosningaloforðin við lífeyrisþega.En það hefur ekki verið staðið við þetta kosningaloforð.Í stað þess að efna þetta stóra kosningaloforð hefur verið bætt um betur og nýrri kjaragliðnun bætt við,þ.e kjaragliðnun á þessu ári og tímabilinu frá síðustu kosningum þ.e 2013-2015.Það þarf að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um 20-25% til þess að leiðrétta kjaragliðnunina 2009-2013 og það þarf að hækka lífeyri um15-20% til þess að leiðrétta kjaragliðnun tímabilsins 2013-2015.Stjórnvöld eru því í stórri skuld við aldraða og öryrkja.
 
         Björgvin Guðmundsson formaður
          kjaranefndar Félags eldri borgara
          í Reykjavík og nágrenni
           www.gudmundsson.net
            
 
 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband