Föstudagur, 4. desember 2015
Útför Dagrúnar Þorvaldsdóttur
Í gær var gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík útför Dagrúnar Þorvaldsdóttur,eiginkonu minnar.Athöfnin var mjög falleg og vel heppnuð.Á undan athöfninni voru leikin létt lög,m.a.Ó borg mín borg eftir Hauk Morthens og Capri Catarina.Forspil var Ave Verum Corpus eftir Mozart.Ragnheiður Gröndal söng einsöng, Dagný, eftir Sigfús Halldórsson áður en minningarræðan var haldin.Sr. Sigurður Jónsson jarðsöng en hann var prestur í Fríðuhúsi þar sem Dagrún var í dagþjálfun í 5 ár eftir að hún fékk sjúkdóminn,Alzheimer. Sr. Sigurður fór mjög fallegum orðum um Dagrúnu í minningarræðu sinni. Það komst vel til skila hjá prestinum hve hjartahlý og góð kona Dagrún var en það voru hennar helstu einkenni eins og fram kemur vel í minningargreinum um Dagrúnu í gær einkum hjá barnabörnunum.Sr. Sigurður sagði,að Dagrún hefði verið glæsileg kona,smekkleg í klæðaburði,sem vakið hefði athygli hvar sem hún fór.Hún var mikil fjölskyldumanneskja.Hún var kletturinn í stórfjölskyldunni.Hún var mjög myndarleg húsmóðir enda lék allt í höndunum á henni.Hún var mjög listræn og tel ég víst,að synir okkar hafi listagáfuna frá henni.Hún hafði yndi af blómarækt eins og hinn glæsilegi garður okkar við Hlyngerði 1 bar glöggt vitni um.Dagrún var frábær móðir og ósérhlífin.Hún eignaðist 6 syni á 10 árum og vildi aldrei neina húshjálp.
Að lokinni minningarræðu prestsins um Dagrúnu söng Hugi Jónson óperusöngvari Ave Maria eftir Sigvalda Kaldalóns.Síðan söng Ragnheiður Gröndal Ást eftir Magnús Þór Sigmundsson og að lokum söng Hugi Jónsson Jólanótt,nýtt lag eftir Þorvald Björgvinsson,son Dagrúnar,við ljóð eftir Soffíu Kristínu Þorkelsdóttur en hún er vistmaður á Hömrum,þar sem sem Dagrún dvaldist síðasta ár sitt.Það var mál kirkjugesta,að tónlistin og ekki síst einsöngslögin hefðu verið mjög vel valin og sett fallegan og ljúfan blæ á útförina.-Organisti var Gunnar Gunnarsson.Guðmundur Pétursson gítarleikari annaðist undirleik við einsöng Ragnheiðar Gröndal.Kór var sönghópur Fríkirkjunnar.- Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar annaðist umsjón útfarar.Jarðsett var í Gufuneskirkjugarðinum.
Útförin fór mjög vel fram en slæm færð olli kirkjugestum nokkrum erfiðleikum við að komast að og frá kirkju og í kirkjugarðinn.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:03 | Facebook
Athugasemdir
Votta þér samúð mína vegna fráfalls eiginkonu þinnar.
Jack Daniel's, 4.12.2015 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.