Hungurlúsin á að "dekka" afturvirknina!

Rætt var um málefni aldraðra á rás 2 hjá Rúv í morgun. Páll Jóhann fulltrúi ríkisstjórnarinnar í fjárlaganefnd kom með nýja kenningu. Hún var sú,að með hækkun lífeyris um 9,7% 1.janúar ætti að bæta lífeyrisþegum tap fyrir að fá ekki afturvirkni frá 1.mai sl.Þetta væri svo mikil hækkun!Þetta er brandari. Þessi 9,7% eru  alger hungurlús.Þetta eru rúmar 10 þús kr. eftir skatt á mánuði á sama tíma og hækkun ráðherranna eru rúmar 100 þús á mánuði og þeir fá 9 mánuði til baka eða 900 þús króna.Þannig er réttlæti þessarar ríkisstjórnar.Björn Valur fulltrúi VG var til andsvara á Rás 2. Hann sagði,að aldraðir og öryrkjar ættu að fá sömu afturvirkni og launafólk eða launauppbót frá 1.mai. Ég tel raunar að lífeyrisþegar eigi að fá afturvirkni frá 1.mars.Og hækkun lífeyris á ekki að vera 9,7% eins og ríkisstjórnin hefur ákveðið heldur 14,5% eins og hækkun lágmarkslauna. Þetta er krafa eldri borgara.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband