Föstudagur, 11. desember 2015
Afturvirkar kjarabætur aldraðra felldar á þingi
Stjórnarmeirihlutinn á alþingi felldi sl. þriðjudag tillögu minnihlutans um að aldraðir og öryrkjar fengju afturvirkar kjarabætur frá 1.mai á þessu ári.Þetta gerist um svipað leyti og kjararáð ákveður að ráðherrar,alþingimenn,dómarar og aðrir embættismenn ríkisins fái afturvirkar mikar kauphækkanir.Og forsætisnefnd alþingis samþykkti að umboðsmaður alþingis fengi afturvirka kauphækkun frá 1.mars! Alþingi gleymir ekki sínum,man vel eftir ráðherrunum og þingmönnunum sjálfum en sér ekki sóma sinn í því að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja enda þótt sá hópur sé sá eini í landinu,sem ekki hefur fengið kjarabætur i kjölfar mikilla almennra kauphækkana á árinu.Er að undra,að álit á alþingi sé ekki mikið í landinu um þessar mundir. Það virðist meira atriði fyrir stjórnarmeirihlutann að sýna vald sitt,sýna hver ræður en að leiðrétta kjör lífeyrisþega enda þótt þeir sem verst eru staddir hafi ekki nóg fyrir mat!
Björgvin Guðmundsson skrifar grein um mál þetta í Fréttablaðið í dag.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.