Laugardagur, 12. desember 2015
Kjör aldraðra:Slæm líðan stjórnarþingmanna!
Stjórnarþingmönnum líður illa eftir að þeir létu hafa sig út í það að fella sanngjarnar og réttlátar kjarabætur aldraðra og öryrkja. Þeir hafa samviskubit. Þeir létu fjármálaráðuneytið hugsa fyrir sig í stað þess að hugsa sjálfir. Línurit um gífurlegar hækkanir lífeyris aldraðra og öryrkja og um tugi milljarða fjárveitingar í málaflokkinn villtu mönnum sýn. Karl Garðarsson þingmaður Framsóknar skrifar á Pressuna af þessu tilefni pistil undir fyrirsögninni: Eru þingmenn illmenni? Þar reynir hann að sanna að svo sé ekki og afsakar hegðun stjórnarþingmanna með því að halda því fram,að aldraðir og öryrkjar hafi fengið eins miklar kjarabætur og launþegar,ef ekki meiri! Þessi tilraun Karls tekst óhönduglega.
Það er alveg sama hvað búin verða til mörg línurit í fjármálaráðuneytinu.Staðreyndirnar eru þessar: Aldraðir og öryrkjar hafa einungis fengið 3% hækkun lífeyris á þessu ári,í janúar,vegna kauphækkana og kaupmáttaraukningar 2014.
Verkafólk og verslunarmenn fengu 14,5 hækkun lágmarkslauna 1.mai 2015.Fjölmargar aðrar stéttir hafa fengið miklar hækkanir á árinu,nýlæknar 25% hækkun,fiskvinnslufólk 30% við byrjun starfa,kennarar 30-40% og þannig mætti áfram telja.Meðaltalshækkun 12 kjarasamninga er 14% á árinu. Það er lögbundið að lífeyrir hækki í samræmi við launaþróun og launaþróun sýnir a.m.k 14% hækkun launa á árinu og í raun meira, ef allar stéttir eru taldar með.Meðan þetta gerðist var lífeyrir frystur í 8 mánuði. Það er mannréttindabrot.Það hafa allar aðrar stéttir fengið launahækkun.Aðeins aldraðir og öryrkjar fá ekkert! Stjórnvöld halda lífeyri aldraðra og öryrkja niðri allan þann tíma.Ég veit ekki hvað á að kalla það. Ef til vill þurfa oddvitar ríkissjórnarinnar að sýna að þeir ráði og hafi mikil völd. En óbreyttir stjórnarþingmenn þurfa ekki að dansa með og láta mata sig á upplýsingum sem standaast ekki. Hvernig væri að óbreyttir stjórnarþingmenn færu að hugsa sjálfstætt og athuga hvað aldraðir og öryrkjar þurfi mikið til þess að hafa í sig og á og geta lifað mannsæmandi lífi.Ef þeir gerðu það mundu þeir ekki fella tillögu eins og þeir felldu sl þriðjudag.
Það eru allskonar rangfærslur notaðar til þess að réttlæta hegðun stjórnarþingmanna. Til dæmis er því nú haldið fram,að lífeyrir muni hækka upp fyrir lágmarkslaun.Þetta er blekking. Það eru aðeins mjög fáir aldraðir og öryrkjar,sem fara í lífeyri upp fyrir lágmarkslaun,loks þegar hækkanir ná fram að ganga.Það verða aðeins þeir,sem búa einir og hafa heimilisuppbót og hafa engar tekjur aðrar en frá TR.Allir þorri lífeyrisþega verður áfram með lífeyri lægri en lágmarkslaun. En einnig ber að geta þess,að aðeins 1% verkafólks er á lágmarkslaunum. Flestir hækka fljótt í hærri launaflokka Það er því ekki raunhæft að miða við lágmarkslaun á blaði.
Mitt ráð til stjórnarþingmanna er þetta: Hugsið sjálfstætt um kjör aldraðra og öryrkja. Látið ekki fjármálaráðuneytið mata ykkur á upplýsingum. Athugið hvað lífeyrisþegar þurfa sér til framfærslu. Einhleypir lífeyrisþegar hafa í dag frá TR 192 þús á mánuði eftir skatt. Það fer í rúmar 200 þús eftir hækkun 1.janúar. Er það nóg? Þeir sem eru í sambúð eða hjónabandi hafa 170 þús á mánuði eftir skatt. Þeir hækka í rúmar 180 þús eftir skatt við hækkun um áramót.Er það nóg? Hugsið sjálfstætt og farið inn á vef TR,þar sem reiknivél vefsins getur reiknað út hvað lífeyrisþegar hafa og ekki þarf að láta fjármálaráðuneytið villa um fyrir sér. Ég spái því, að flestir muni sjá,að þetta, sem er verið að skammta lífeyrisþegum er alltof lítið og það þarf að leiðrétt það myndarlega.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:31 | Facebook
Athugasemdir
Það er nefnilega málið og enn ein blekkingin sem við þurfum að fást við því stjórnarliðar halda því fram að hækkunin fyrsta janúar sl. hafi verið fyrir þetta ár.
Málið er bara að þetta er til að bæta upp fyrir árið 2014 og það þarf að leiðrétta þessa "háu" herra um þá villu þeirra.
Jack Daniel's, 12.12.2015 kl. 11:05
Skömm okkar stjórnvalda sem á ekki að heima hérna á Íslandi, sem því miður er að gerast: "Þegar þingmenn framleiða fátækt! => http://maggiraggi.blog.is/blog/maggiraggi/entry/2162336/".

Já það er orðið sorglegt að þau sem lifa fátækt, séu sveltir óréttlátum launum, skömm okkar ALÞINGI, skömm okkar LÝÐVELDIS ÞJÓÐAR
Magnús Ragnar (Maggi Raggi)., 20.12.2015 kl. 08:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.