Sunnudagur, 13. desember 2015
Bjarni Ben.hefur rofið 3 stór kosningaloforð við aldraða!
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins gaf öldruðum nokkur stór kosningaloforð fyrir síðustu kosningar 2013. Loforðin voru þessi:
1.Bjarni og landsfundur flokksins lofuðu að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans með því að leiðrétta lífeyri aldraðra til samræmis við hækkun launa.Við þetta hefur Bjarni ekki staðið.
2. Bjarni sendi eldri borgurum bréf og lofaði að afnema tekjutengingar í kerfi almannatrygginga. Þetta kosningaloforð hefur Bjarni rofið.
3.Bjarni og flokkur hans lofuðu að leiðrétta skerðingu á frítekjumarki fjármagnstekna. Bjarni hefur rofið þetta kosningafyrirheit.
Með því að standa ekki við kosnloforðin er Bjarni að sýna eldri borgurum óvirðingu.Hann er einnig að óvirða kjósendur almennt,þar eð þessi loforð hafa átt þátt í því að koma honum til valda.inga Hann situr því nú við völd á fölskum forsendum.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:15 | Facebook
Athugasemdir
Þrátt fyrir þessar staðreyndir, má bóka að meira en 85% af þeim eldriborgurum sem kusu Sjálfstæðisflokkinn síðast muni gera það líka í næstu kosningum.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.12.2015 kl. 01:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.