Mánudagur, 14. desember 2015
Bjarni Benediktsson óvirðir eldri borgara!
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins var gestur Sigurjóns á Sprengisandi í gær. Meðal annars var rætt um málefni aldraðra og öryrkja.Þar gekk hann einu sinni enn fram af eldri borgurum og öryrkjum.Þegar búið var að segja,að eldri borgarar hefðu kvartað mikið yfir því hvað þeir hefðu lítinn lífeyri frá TR og að hann dygði ekki til framfærslu hjá þeim sem minnst hefðu sagði Bjarni: Já,já. En það eru líka hérna menn,sem vakna snemma á hverjum morgni til þess að fara til vinnu og þeir hafa sumir ekkert meira en þessir,sem eru á bótum! Hvað er maðurinn að fara eða gefa í skyn Hann sagði á þingi,að ekki mætti hækka lífeyrinn upp fyrir lágmarkslaun,þar eð þá væri enginn hvati fyrir eldri borgara og öryrkja til þess að vinna.Þá spurði ég hvort hann vildi reka eldri borgara út að vinna.Nú bætir hann um betur og segir að eldri borgarar hafi jafnmikið í lífeyri og þeir sem eru í fullri vinnu.Þetta er rugl.Lífeyrisþegar eru með lífeyri sem er langt undir launum. En hins vegar mættu þeir gjarnan vera með svipuð kjör. Eldri borgarar eru búnir að borga til samfélagsins alla sína starfsævi.Þeir eru ekki neinir bótaþegar. Þeir eiga rétt á lífeyri frá almannatryggingum,eiga rétt á eftirlaunum án þess að einhverjir sætabrauðsdrengir í stjórnmálum séu að óvirða þá og draga niður. Framkoma Bjarna er eins við öryrkja. Hann talar einnig niður til þeirra. Hann talar alltaf eins og þeir vilji endilega " vera á bótum". Öryrkjar hafa ekki kosið það sjálfir að vera öryrkjar.Þeir hafa sumir lent í slysum,aðrir veikst alvarlega og þannig mætti áfram telja. Það er alvarlegt mál,að æðstu menn þjóðarinnar skuli tala um eldri borgara og öryrkja eins og þeir séu þurfalingar.Þessir hópar eiga rétt á lífeyri og stjórnarskráin skyldar stjórnmálamenn til þess að veita þá aðstoð,sem dugi til sómasamlegrar framfærslu. En Bjarni brýtur stjórnarskrána.Bjarni hefur engan rétt til þess að óvirða eldri borgara og öryrkja eins og hann gerir.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Athugasemdir
Það er fágætt að silfurskeiðungar eins og Bjarni, en af hroka hans mætti ætla að hann hafi þegið þjóðfélagsstöðu sína af Guði sjálfum, hafi nokkurt skynbragð á lífskjörum þeirra sem minnst mega sín.
Það er er útilokað að menn eins og Bjarni öðlist nokkurn tíma þann skilning, sama hvað mörg tækifæri þeim eru gefin af kjósendum. Kjósendum sem ekkert fá fyrir atkvæði sitt annað en upplifunina af sviknum loforðum.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.12.2015 kl. 09:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.