Mánudagur, 14. desember 2015
Fá ekki hækkun í samræmi við launaþróun!
Oddvitar stjórnarflokkanna segja,að lífeyrir aldraðra og öryrkja muni á næsta ári hækka til jafns við launaþróun.Þetta er ekki rétt.Laun hafa hækkað á yfirstandandi ári um 14-5%. En ríkisstjórnin ætlar að skammta lífeyrisþegum 9,7% hækkun og er þá eftir að bæta öldruðum og öryrkjum drátt í 8 mánuði á að hækka lífeyrinn.Á þeim tíma máttu lífeyrisþegar bera bótalaust verðhækkanir.
Lágmarkslaun hækkuðu 1.mai 2015 um 14,5%. Meðaltalshækkun 12 kjarasamninga á árinu er 14 %. Fiskvinnslufólk,byrjunarlaun hækka um 30%.Nýlæknar hækka um 25%,kennarar hækka langt umfram meðaltalið.Það er því ósvífið að oddvitar stjórnarflokkanna skuli fullyrða að lífeyrisþegar fái hækkun lífeyris í samræmi við launaþróun. Og það er fáheyrt að fulltrúar stjórnarflokkanna skuli fullyrða að þeir séu að láta lífeyrisþega fá jafnmikla hækkun og launþegar hafa fengið, þegar lífeyrisþegar hafa ekki fengið eina einustu krónu í hækkun í kjölfar kjarasamninga en ráðherrarnir sjálfir stinga rúmum 900 þúsund krónum í vasann,aðeins afturvirkum kaupauka en öldruðum og öryrkjum er synjað um afturvirkni.Þetta er siðlaust.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.