Þriðjudagur, 15. desember 2015
Á fund Halldórs Laxness fyrir 60 árum
Um þessar mundir eru 60 ár frá því Halldór Kiljan Laxness fékk Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.Af því tilefni fór ég þá á fund skáldsins í Gljúfrasteini til þess að biðja hann að flytja hátíðarræðu 1.desember 1955 á hátíðisdegi stúdenta en ég var þá formaður stúdentaráðs. Með mér í för var Jón G.Tómasson,sem einnig var í stúdentaráði.Frú Auður,eiginkona skáldsins,tók á móti okkur og gaf okkur kaffi.Halldór tók erindi okkar vel en kvað einn hæng á: Hann yrði í Stokkhólmi 1.desember að taka á móti Nóbelsverðlaununum. Við vildum ekki sleppa Halldóri við að tala 1.desember svo niðurstaðan varð sú að fá hann til þess að flytja ræðuna 1.desember af segul- bandi. Það tókst vel.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.