Verið að níðast á öldruðum og öryrkjum!

 

Svo virðist sem ríkisstjórn og alþingi ætli að bregðast öldruðum algerlega á þessu ári.Við afgreiðslu fjáraukalaga fyrir 2015 var tillaga um kjarabætur lífeyrisþega felld. Sýnt hefur verið fram á með mörgum dæmum, að ekki er unnt að lifa af  lægsta lífeyri  aldraðra frá TR. Þessi lífeyrir dugar ekki fyrir framfærslukostnaði út mánuðinn.Lyf eða læknishjálp mætir því afgangi. Og stundum eru matarkaup látin  sitja á hakanum. Þetta er mjög gróft mannréttindabrot og stríðir gegn 76. grein stjórnarskrárinnar.En þetta virðist ekki skipta meirihluta Alþingis neinu máli. Ríkisstjórnin hreyfir sig ekki í  þessu máli og ekki meirihluti alþingis heldur.Til þess að kóróna ranglætið og misréttið í þjóðfélaginu gerist það nú fyrir skömmu, að hálaunamenn, ráðherrar, alþingismenn og embættismenn ríkisins fá mjög miklar kjarabætur, ekki frá 1.janúar n.k eins og eldri borgarar og ekki frá 1.mai  sl eins og verkafólk, nei frá 1.mars s!. Ráðherrar og alþingismenn hafa verið taldir svo illa haldnir, að þeir yrðu að fá góða summu í vasann strax! Ráðherrarnir  fengu rúmar  900 þúsund greiddar  nú þegar! En um leið og þeir taka við þessum upphæðum segja þeir nei við aldraða og öryrkja!

 

Aldraðir fái sömu hækkun og verkafólk og frá sama tíma

 

Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fyrir alþingi til annarrar umræðu, var ekki að sjá í því neinar  lagfæringar á kjörum aldraðra og öryrkja umfram þá hungurlús, sem var boðuð í upphafi  og á ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári.

Það er ófrávíkjanleg krafa kjaranefndar eldri borgara (og LEB) að eldri borgarar fái nákvæmlega jafn mikla hækkun á sínum lífeyri og verkafólk fékk á sínum launum (14,5%).Og það hefur verið ófrávikjanleg krafa eldri borgara, að aldraðir fengju þessa hækkun frá sama tíma og verkafólk, þ.e. frá 1.mai sl .Nú væri réttlættismál, að aldraðir fengju þessa hækkun frá 1.mars eins og  ráðherrar, alþingismenn og embættismenn.Það er meiri þörf á, að hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja frá TR gildi frá 1.mars heldur en hækkun á launum þessara hátekjumanna.

 

Hækkun lífeyris ekki í samræmi við launaþróun

 

Ríkisstjórnin boðaði 9,4% hækkun á lífeyri aldraðra, sem tæki gildi næsta ár.Þetta eru rúmar 10 þús. kr á mánuði eftir skatt.Þessi hungurlús er það,sem forsætisráðherra kallar mestu hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja í sögunni! Á sama tíma hækka laun ráðherranna um meira en 100 þúsund krónur á mánuð  og afturvirkt frá 1.mars eða um meira en 900 þúsund kr strax.Ríkisstjórninni er gjarnt að tala um met. Þetta er áreiðanlega met í ranglæti og misrétti. Á þessu ári hafa laun margra stétta hækkað óvenju mikið. Meðaltalshækkun á þessu ári hefur verið í kringum 14% en einstaka stéttir hafa hækkað um 18%, aðrar um 25% og fiskvinnslufólk, sem er að byrja störf, hækkar um 30%. Samkvæmt lögum á lífeyrir að taka mið af launaþróun. Það er alveg ljóst,að það er verið að brjóta lögin með því að ákvarða hækkun lífeyris langt fyrir neðan hækkun launa flestra stétta.Það er verið að níðast á öldruðum og öryrkjum.

 

 

 

Björgvin Guðmundsson

Formaður kjaranefndar Félags

eldri borgara í Reykjavík

og nágrenni

Fréttablaðið 16.des.2015

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband