Fimmtudagur, 17. desember 2015
Handjárnin héldu á alþingi!
Atkvæðagreiðsla um fjárlögin að lokinni 2.umræðu fór fram í gærkveldi.Stjórnarherrarnir,þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben gáfu út þau fyrirmæli, að ekki mætti samþykkja neinar afturvirkar kjarabætur til aldraðra og öryrkja.Það voru sett handjárn á allt stjórnarliðið. Og merkilegt nok.Handjárnin héldu.Aðeins einn stjórnarþingmaður,Ásmundur Friðriksson,reyndi að losa handjárnin og tókst aðeins að losa um þau en ekki að fullu. Hann sat hjá.Ekki má á milli sjá hvor foringjanna var neikvæðari gagnvart öldruðum og öryrkjum,Sigmundur Davíð eða Bjarni Ben.Þeir kepptust við það báðir að lýsa því yfir að lífeyrisþegar fengju ekki afturvirkar hækkanir.Þeir væru raunar búnir að fá jafnmikið og launþegar!Samt hafa aldraðir og öryrkjar ekki fengið eina krónu í kjölfar mikilla kauphækkana sl vor.Stjórnarherrarnir virðast staðráðnir í því að að halda lífeyrisþegum við fátækramörk.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.