Föstudagur, 18. desember 2015
Afturvirka hækkun strax!
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni krefst þess,að aldraðir fái nú þegar greidda afturvirka hækkun á lífeyri sinn eins og ráðherrar alþingismenn og embættismenn fengu.Það er meiri þörf á því að aldraðir fái greidda hækkun afturvirk en framangreindir hálaunamenn.
Ekkert hefur komið fram við aðra umræðu um frumvarp til fjárlaga um að ríkisstjórnin ætli að verða við kröfu eldri borgara um afturvirkar kjarsuppbætur.
Kjaranefndin ítrekar kröfu sína um að lífeyrir aldraðra verði hækkaður afturvirkt um 14,5% hjá þeim sem verst hafa kjörin og að lífeyrir hækki hlutfallslega hjá öðrum lífeyrisþegum.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:01 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.