Mánudagur, 21. desember 2015
Öryrkjar tiltölulega færri hér en á hinum Norðurlöndunum
Stefán Ólafsson prófessor segir,að öryrkjar séu tiltölulega færri hér en á hinum Norðurlöndunum.Hér eru öryrkjar 10% af vinnufærum mönnum en á hinum Norðurlöndunum eru þeir 11-14%.Á sama tíma og þetta liggur fyrir segir Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar,að öryrkjar séu fleiri hér en á hinum Norðurlöndunum!Það er mjög ámælisvert,að formaður fjárlaganefndar fari þannig með rangt mál og reyni að sverta öryrkja í leiðinni.Hún hefur einnig tekið undir með Bjarna fjármálaráðherra og sagt,að öryrkjar megi ekki hafa sama lífeyri og nemur lágmarkslaunum. Síðustu rök hennar voru þessi: Þeir,sem eru að vinna þurfa að fara með börn á leikskóla og þeir þurfa einnig að leggja í kostnað við að koma sér í vinnu og heim aftur.Þetta er hundalogik.Svo virðist sem Vigdís vilji halda lífeyri öryrkja og aldraðra niðri svo hann fari ekki upp fyrir lágmarkslaun! Þarna hefur Bjarni fengið góðan bandamann. Hvers vegna gengur Vigdís ekki í Sjálfstæðisflokkinn? Hún er greinilega ekki félagshyggjumaður. Hún aðhyllist sjónarmið hægri manna og á heima með þeim í flokki.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:20 | Facebook
Athugasemdir
FÓLK Á BESTA ALDRI VERÐUR ÖRYRKJAR- VEGNA SLYSA- ÓLÆKNANDI SJÚKDÓMA- KRABBAMEINS O.FL. SEM FRÚ VIGDIS HAUKSDÓTTIR OG BJARNI BEN VIRÐAST EKKI SKILJA.
ÖRYRKI ER SKÖMM ÖRYRKI ER EINHVER AFÆTA Á ÞJÓÐFÉLAGI PENINGAMANNA SEM BER AÐ UPPRÆTA.
ÞEIR ERU EINS OG LÚS- DREPIÐ ÞÁ !
Erla Magna Alexandersdóttir, 21.12.2015 kl. 21:40
þETTA FÓLK SKILUR EKKI AÐ ÖRYRKJAR EIGA SUMIR BÖRN !
FÓLK Á BESTA ALDRI GETUR FENGIÐ KRABBAMEIN- SLASAST EÐA FENGIÐ AÐRA KVILLA.
ÞIÐ BJARNI BEN OG VIGDÍS H. VONA AÐ ÞIÐ KYNNIST ÞVÍ TIL AÐ SKILJA AÐ LÍFIÐ ER EKKI BARA AÐ FÁ LAUN SEND Á REIKN. MÁNAÐARLEGA. ÓSKA ÞESS AÐ ÞIÐ SKILJIÐ ÞESSI MÁL- Á MEÐAN ÞIÐ LIFIÐ !
SPÁMIÐILL ERLA M.
Erla Magna Alexandersdóttir, 21.12.2015 kl. 21:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.