Þriðjudagur, 22. desember 2015
Stærsta kosningaloforðið óuppfyllt
!
Það er algengt, að stjórnmálamenn gefi mikil loforð í kosningum en standi síðan ekki við þau. En það er hins vegar sjaldgæft, að ráðamenn, sem rofið hafa kosningaloforðin, tali eins og þeir hafi efnt þau! En það hefur gerst hjá ráðamönnum núverandi stjórnarflokka.
Ætluðu að leiðrétta kjaragliðnun
Stjórnarflokkarnir lofuðu því í alþingiskosningunum 2013 að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 2009. Jafnframt lofuðu þeir að leiðrétta alla kjaragliðnun tímabilsins 2009-2013 (krepputímans).Mesta kjaraskerðingin fólst i kjaragliðnuninni.Á umræddu tímabili var lífeyrir frystur langtímum saman þó laun hækkuðu.Það kallast kjaragliðnun. Hún var mikil þá .Og nú hefur orðið ný kjaragliðnun á timabilinu 2013-2015. Mest hefur kjaragliðnunin orðið á yfirstandandi ári.Ekkert hefur verið gert í því að leiðrétta kjaragliðnun krepputímans. Og ekkert hefur heldur verið gert í því að leiðrétta kjaragliðnun timabilsins 2013-2015. Hækka þarf lífeyri um 15% til þess að leiðrétta hana.
Aðeins lítið afturkallað ennþá
Kjaraskerðingin 2009 hefur verið afturkölluð að hluta. Þar var um 6 atriði að ræða og sumarið 2013 afturkallaði núverandi stjórn tvö þeirra.Hún afturkallaði skerðingu á frítekjumarki vegna atvinnutekna aldraðra og færði til fyrra horfs.Það gagnaðist þeim,sem voru á vinnumarkaðnum. Og hún afturkallaði það, að greiðslur úr lífeyrissjóði væru taldar með tekjum við úreikning grunnlífeyris. Sú ráðstöfun hafði skert grunnlífeyri hjá þeim, sem höfðu háar greiðslur úr lífeyrissjóði. Þriðja atriðið, sem hefur hlotið leiðréttingu, féll úr gildi af sjálfu sér, þar eð það var tímabundið. Það var skerðing tekjutryggingar, sem féll úr gildi í árslok 2013. Meðal skerðinga frá 2009, sem eftir er að leiðrétta, er eftirfarandi: Skerðing á frítekjumarki vegna fjármagnstekna.Og skerðing á aldurstengdri örorkuuppbót en hún var skert með tekjutengingu.Oddvitar stjórnarflokkanna segja alltaf: Við erum búnir að afturkalla kjaraskerðinguna frá 2009! En það er ekki rétt.
Hækka þarf lífeyri um 20-25% vegna loforðs
Kjaragliðnunin á krepputímanum er langmesta kjaraskerðingin sem fyrr segir. Hún er óleiðrétt.Það þarf að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um 20-25 % til þess að leiðrétta hana.Talnakönnun Benedikts Jóhannessonar kannaði fyrir Öryrkjabandalag Íslands hvað kjaragliðnunin væri mikil. Niðurstaðan var þessi: Heildartekjur öryrkja ( fjármagnstekjur innifaldar) hækkuðu um 4,7% á tímabilinu 2009-2013 en á sama tímabili hækkaði launavísitalan um 23,5%. Kjaragliðnun var 18,8%. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Rvk fær út 23% kjaragliðnun hjá öldruðum á sama tímabili.Borin var saman breyting á lágmarkslaunum og hækkun lágmarkslífeyris einhleypra eldri borgara frá TR, sem einungis höfðu tekjur frá almannatryggingum á tímabilinu 2009-2013.
Óvirðing við kjósendur!
Stjórnarflokkarnir minnast aldrei á kjaragliðnunina.Það er þó skjalfest, að þeir lofuðu að leiðrétta hana ásamt annarri kjaraskerðingu krepputímans.Talsmenn stjórnarflokkanna tala eins og búið sé að leiðrétta alla umrædda kjaraskerðingu en það er langur vegur þar frá.Bjarni Benedktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lofaði því einnig fyrir þingkosningarnar 2013 að afnema allar tekjutengingar almannatrygginga.Hann hefur ekki staðið við það.Það er óvirðing við kjósendur að svíkja kosningaloforð. En það er jafnvel enn alvarlegra að rjúfa kosningafyrirheitin og segja síðan við kjósendur að búið sé að efna kosningaloforðin!Hvað kallast slík framkoma?
Björgvin Guðmundsson
Formaður Kjaranefndar
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fréttablaðið 22.des.2015
This email has been sent from a virus-free computer protected by Avast. www.avast.com |
No virus found in this message. Checked by AVG - www.avg.com Version: 2016.0.7303 / Virus Database: 4489/11228 - Release Date: 12/21/15
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.