Gleðileg jól!

Kristnir menn um allan heim halda jólin hátíðleg í dag.Jólin eru hátíð ljóss og friðar og öðru fremur eru þau hátíð barnanna.

Á jólahátíðinni ættum við að hugsa um hvernig útrýma má fátækt á Íslandi. Fátæktin er blettur á íslensku samfélagi.Það er rétt,sem forseti Íslands sagði,að það ætti að vera unnt að koma málum þannig fyrir á Íslandi,að allir gætu haldið jól og þar á meðal allir eldri borgarar og öryrkjar en svo er ekki í dag.Enn verða margir að leita til hjálparstofnana eftir matargjöfum fyrir jólin.Það er ekki rétt skipulagt. Æ fleiri taka nú undir með talsmönnum eldri borgara og gagnrýna stjórnvöld fyrir að lagfæra ekki kjör aldraðra við afgreiðslu fjárlaga.Menn undrast það,að eldri borgarar skyldu ekki fá afturvirkar kjarabætur eins og  verkafólk,ráðherrar,alþingismenn og embættismenn.Nú síðast tekur Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri undir þessa gagnrýni.Hann segir,að ríkisstjórnin verði að taka tillit til gagnrýni eldri borgara. Þeir teja sig hlunnfarna,segir Styrmir.

Ef til vill geta jólin leitt okkur öll á rétta braut og þar á meðal stjórnvöld.Strengjum þess heit að útrýma fátækt og bæta kjör þeirra,sem verst eru staddir meðal aldraðra og öryrkja. Það rétt,sem Styrmir segir,að það, sem ríkisstjórnin ætlar að gera 1.janúar, dugar ekki.Meira þarf til. 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband