Tónleikar á Eirhömrum og á Hömrum

Hugi Jónsson baritonsöngvari hélt tónleika á Eirhömrum og Hömrum fyrir skömmu. Söng hann gömul sálmalög.Organisti var Kári Allansson en þeir hafa þróað með sér samstarf um skeið.Einnig söng Hugi lag eftir Þorvald Björgvinsson,Jólanótt.Lagið samdi Þorvaldur við ljóð Soffíu Kristínar Þorkelsdóttur en hún er amma Huga og er vistmaður á Hömrum.Góður rómur var gerður að tónlistarflutningnum og lag Þorvaldar vakti athygli.Hugi hefur gefið út tvo diska með sálmalögunum.Fylgja þeim mjög itarlegar og vandaðar skýringar,þar sem rakin er þróun og saga íslensra sálma. Einnig hefur hann gefið lag Þorvaldar út á geisladiski til einkanota. Undirleikarar með söng hans á disknum voru Örn Arnarson,sem leikur á gitar og Örn Ýmir Arason,sem leikur á kontrabassa.-Lag Þorvaldar var einnig leikið í jólaboðinu á jóladag hjá Guðmundi Björgvinssyni.Tvíburar Söndru Rúnar voru skírðir í gær á heimili Rúnars Björgvinssonar  og Elínar Traustadóttur,foreldra Söndru Rúnar.Hlutu þeir nöfnin Frosti Rúnar  og Fannar Elí.Lag Þorvaldar,Jólanótt var leikið í skírnarveislunni að ósk Rúnars og Elínar.Var gerður góður rómur að tónlistarflutningnum.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband