Eldri borgarar greiða sjálfir stærstan hluta lífeyris síns

Umræðan á alþingi um lífeyrisþega er eins og eldri borgarar og öryrkjar séu mikil byrði á þjóðfélaginu.En samanburður við hin Norðurlöndin leiðir í ljós,að svo er ekki.Hér á landi eru lífeyrisþegar hlutfallslega færri en á hinum Norðurlöndunum.Lífeyrisþegar eru hér 22% af öllum íbúum landsins. En á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall miklu hærra eða sem hér segir:Noregur 29%,Danmörk 28%,Svíþjóð 29% og Finnland 32%.

Ef litið er á útgjöld hins opinbera til lífeyrisþega kemur í ljós,að þau eru langminnst hér á Norðurlöndunum öllum. Staðreyndirnar eru þessar: Ellilífeyrisþegar greiða sjálfir stærstan hluta lífeyris síns.60% af lífeyri eldri borgara kemur úr lífeyrissjóðunum,þ.e. frá þeim sjálfum. Þetta er m.ö.o. lífeyrir,sem eldri borgarar hafa safnað á langri starfsævi.Á hinum Norðurlöndunum er þessu öðru visi farið. Þar verður ríkið að greiða megnið af lífeyrinum.En samt stendur íslenska ríkið sig verst í samanburði við hin Norðurlöndin og greiðir hlutfallslega minnst til eldri borgara og öryrkja.Íslenskir stjórnmálamenn,sem halda um stjórnvölinn hér í dag eru ekki að standa sig. Þeir hafa fallið á prófinu.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefur verið reiknað út varðandi skattlagningu á lífeyrir, að 40% af þeirri upphæð sem greidd er út mánaðarlega til lífeyrisþega eru atvinnutekjur, en 60% fjármagnstekjur. En öll greiðslan er skattlögð 100% sem atvinnutekjur. Hvers vegna er ekki tekið á þessu? Hvers vegna er það látið viðgangast að ríkið steli tug þúsundum króna af lífeyrisþegum í hverjum mánuði? Ég ásamt Dögun, stjórnmálasamtökum um réttlæti, sanngirni og lýðræði höfum bent á þetta ranglæti, en allstaðar komið að tómun kofanum. Betur orðað, að tómum heilabúum. Það virðist vera, að Dögun sé eina stjórnmálaaflið sem ber hag eldri borgara fyrir brjósti.

Björgvin E. Vídalín Arngrímsson (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband