Neitar forsetinn að skrifa undir fjárlögin?

Forseti Íslands gagnrýndi það harðlega,þegar hann heimsótti fjölskylduhjálpina á Reykjanesi,að stjórnvöld skipulegðu mál svo illa,að hópur fólks gæti ekki haldið jól vegna fátæktar og þar á meðal væru  vissir eldri borgarar og öryrkjar.Taldi forsetinn,að það ætti að vera unnt að skipuleggja mál þannig,að allir gætu haldið jól án þess að þurfa að leita til hjálparstofnana.Þarna tekur forsetinn undir málflutning  eldri borgara og öryrkja. 

Með hliðsjón af þessari hörðu gagnrýni forsetans hlýtur sú spurning að vakna hvort hann muni skrifa undir fjárlögin á gamlársdag.Fjárlögin halda lífeyri aldraðra og öryrkja niðri eftir að ríkisstjórnin felldi allar tillögur um að rýmka lífeyri aldraðra og öryrkja og greiða hækkun afturvirkt til þeirra eins og til annarra.Það er rökrétt með hliðsjón af framansögðu, að forsetinn neiti að undirrita fjárlögin.Stjórnarskráin heimilar honum það.Geri hann það kemur tvennt til greina: Fjárlögin verða lögð undir þjóðaratkvæði.Eða fjárlögin verða dregin til baka og breytingar gerðar á þeim.Síðari leiðin var farin, þegar forsetinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin.Gerðar voru þá breytingar á lögunum og nýtt frumvarp lagt fram. Það var talið standast að draga fjölmiðlalögin til baka og eins ætti það að standast að draga fjárlögin til baka. Það ætti ekki að taka nema 2-3 daga að breyta fjárlögunum og samþykkja ný á alþingi.Frí þingmanna þyrfti því ekki að styttast mikið en auk þess ber að hafa það í huga að launafólk almennt hefur aðeins frí blá frídagana og hið sama mætti gilda um þingmenn.

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband