Föstudagur, 1. janúar 2016
Er Sigmundur Davíð á annarri plánetu?
Margir munu hafa hugsað sem svo,þegar Sigmundur Davið forsætisráðherra flutti ávarp sitt á gamlárskvöld,að hann gæti tæpast verið á sömu plánetu og við hin.Hann lýsti ástandinu þannig á Íslandi,að hér væri allt í blóma og engin vandamál.Og allt átti að vera hér mest og best,meiri árangur en erlendis. Lífskjör hefðu stórbatnað.Gallinn er aðeins sá,að þegnarnir hafa ekki orðið varir við þetta blómaskeið.Unga fólkið getur ekki keypt íbúðir. Þær eru svo dýrar og vextir svo háir,að ungt fólk ræður ekki við það.Þess vegna flytur margt af því til útlanda. Aldraðir og öryrkjar,sem eru á lægsta lífeyrinum, hafa ekki nóg til framfærslu og verða jafnvel að neita sér um að leysa út lyfin sín.Enn eru sumir í sárum eftir bankahrunið. En sennilega eru þetta allt smáatriði í augum Sigmundar Davíðs.Víst hefur náðst ágætur árangur í því að rétta Ísland við eftir hrunið og kreppuna. 3 ríkisstjórnir hafa komið að því verki. En núverandi stjórnarherrar tala eins og þeir hafi verið einir að verki. Sennilega vikta þó verk fyrri ríkisstjórna meira í þessu efni.Ríkisstjórn Geirs Haarde setti neyðarlögin og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur samdi við alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að gera þær efnahéagsráðstafanir,sem dugðu til þess að koma Íslandi á réttan kjöl,þar á meðal að greiða upp megnið af 220 milljarða skuld,sem stjórnin tók við.Ríkisstjórn Jóhönnu kom einnig slitabúum bankanna undir gjaldeyrishöftin en það var forsenda þess,að unnt væri að afnema höftin og semja við slitabúin. Núverandi ríkisstjórn gerði vel í því að viðurkenna það sem fyrri ríkisstjórnir hafa gert og leysa þau vandamál,sem enn eru til staðar í íslensku samfélagi svo sem slæm kjör verulegs hóps aldraðra og öryrkja.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.