Laugardagur, 2. janúar 2016
"Illt er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti"
Getur einhver skýrt út fyrir almenningi réttlætið í eftirfarandi ráðstöfunum ársins 2015:
Nýir kjarasamningar og afleiðingar þeirra:
1.Ráðherrar fengu sl. haust 107 þúsund króna launahækkun á mánuði,afturvirka frá 1,mars eða alls kr. 1.070.000 hækkun á árinu.
2. Verkafólk fékk 14,5% hækkun á lágmarkslaunum frá 1.mai, 31 þús. kr. hækkun á mánuði,eða 248.000 kr. hækkun á árinu.
3.Aldraðir og öryrkjar fengu 0 kr. í kjarabætur.
Er þetta ekki gott réttlæti. Mestu kjarabætur,sem lífeyrisþegar hafa fengið á lýðveldistímanum,samkvæmt þvi sem Bjarni Ben. segir.Þar á hann við hækkun,sem kemur til framkvæma á árinu 2016.Þessi ósannindi Bjarna hafa verið hrakin.
Réttlætið samandregið:
Ráðherrar 1 milljón króna launahækkun á árinu.
Verkafólk 248 þús. kr. launahækkun á árinu.
Aldraðir og öryrkjar 0 krónur í hækkun!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:26 | Facebook
Athugasemdir
Það varlítið úr hheimsmetinu sem Sigmundur Davíð forsætisráðherra boðaði að hann og ríkisstjornin mundu setja þegar hann myndi gera lýðnum ljóst hversu hár elli og örorkulíeyrinn yrðiþegar þeir væru búnir að reikna hækkuna á lífeyrinn.Ég var með launaseðla frá desember 2015, frá þrem aðilum. Éinn karl 78 ára
tvær konur 75 ára 67 ára.Þanntíma sem ég var á síðuni TR,Mínar síður.Breyttust tölurnar þrisvar sinnumtil lækunar þá upphæð sem sett var inn í fyrstu. Heimsmetið sem sigmundur lofaði varð eins og þegar fíllinn fékk jósótt og það fæddist mús.
Elías BJörnsson (IP-tala skráð) 3.1.2016 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.