Sunnudagur, 3. janúar 2016
Sigmundur Davíð ekki í tengslum við þjóð sína!
Á árinu 2015 gerðist það,að í lok hvers mánaðar höfðu ávallt einhverjir eldri borgarar samband við skrifstofu Félags eldri borgara í Reykjavík og sögðu frá því, að þeir ættu ekki fyrir öllum útgjöldum mánaðarins.Þeir yrðu því að sleppa því að leysa út lyfin sín eða að fara til læknis.Og í vissum tilvikum sögðust þeir ekki eiga fyrir mat.Þegar ástandið er þannig lýsir forsætisráðherra,Sigmundur Davíð því yfir í áramótaávarpi,að hagsæld hafi aukist til mikilla muna á árinu og kaupmáttur hafi stóraukist.Forsætisráðherra minntist ekkert á slæm kjör aldraðra og öryrkja en þó hafði forseti Íslands rætt sérstaklega slæm kjör þeirra nokkrum dögum áður.Þessi staðreynd leiðir i ljós,að forsætisráðherrann er ekki í tengslum við þjóð sína.Hann veit ekki hvar skórinn kreppir að. Ef til vill er það skýringin á því hvers vegna Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. hundsuðu allar óskir eldri borgara um auknar kjarabætur í tengslum við afgreiðslu fjárlaganna.Stjórnarherrarnir virðast telja,að bæta þurfi kjör ráðherra, dómara og alþingismanna en ekki aldraðra og öryrkja! Þess vegna voru laun dómara hækkuð um allt að 50% fyrir skömmu og laun ráðherranna hækkuð um rúmar 100 þúsund krónur á mánuði.Ráðherrarnir fengu 1 milljón í kaupauka fyrir jólin!En þeir Sigmundur Davíð og Bjarni ákváðu á sama tíma,að aldraðir og öryrkjar fengju ekki neitt fyrir hátíðarnar.Þeir telja ekkert vandamál vera hjá öldruðum og öryrkjum. Vandamálið liggur hjá ráðherrunum og dómurunum. Þess vegna þarf að bæta kjör þeirra ríflega!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.