Þriðjudagur, 12. janúar 2016
Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar segir svo:
Þegar ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðisflokksins og Sósialistaflokksins setti lög um almannatryggingar 1946,var Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra.Hann lýsti því þá yfir, að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Evrópu og allir á Íslandi ættu að njóta þeirra án tillits til stéttar eða efnahags.Fyrst eftir lagasetninguna voru almannatryggingar á Íslandi í fremstu röð en síðan drógust þær aftur úr og í dag standa almannatryggingar á Íslandi langt að baki slíkum tryggingum á Norðuröndum og í Bretlandi.Grunnlífeyrir á Ísland er aðeins þriðjungur slíks lífeyris í grannlöndum okkar. Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar hér. Bjarni Benediktsson vill halda þeim niðri.Það eru alger öfugmæli, þegar Bjarni Benediktssn segir, að núverandi ríkisstjórn sé að auka lífeyri aldraðra og öryrkja meira en nokkru sinni áður á lýðveldistímanum.Ríkisstjórnin er ekki að efla almannatryggingar hér neitt.Hún heldur ekki einu sinni í horfinu. Laun hækkuðu hér um 14-20% á árinu 2015.Launin hækkuðu frá 1.mai 2015. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkar ekkert í 8 mánuði og aðeins um 9,7% frá l.janúar 2016.Lífeyrir hækkar miklu minna en laun og 8 mánuðum seinna en laun. Það er því verið að brjóta lagaákvæði um að lífeyrir eigi að hækka í samræmi við launaþróun og það er verið að hlunnfara lífeyrisþega með því að draga þá á hækkun í 8 mánuði. Almannnatryggingar voru efldar meira 1946 en nú.Og lífeyrir hækkaði um tæp 20% í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur um áramótin 2008/2009.Viðreisnarstjórnin stórefldi einnig almannatryggingar.Það stenst því engan vegin, að ríkisstjórnin sé nú að gera betur en áður. Það er þveröfugt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur stóð sig einnig betur á krepputímanum gagnvart lífeyrisþegum, þar eða lífeyrir þeirra,sem voru á strípuðum bótum, var þá ekkert skertur. Hann hélst óbreyttur þó aðrar bætur lækkuðu.Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. eru ekki að bæta kjör lífeyrisþega Þeir eru að níðast á þeim.
Björgvin Guðmundsson,formaður kjaranefndar FEB
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.