Laugardagur, 30. janúar 2016
Ríkið borgar launahækkunina fyrir atvinnurekendur!
Nýir kjarasamningar náðust fyrir skömmu.Atvinnurekendur samþykktu að hækka laun um 6,2 % frá áramótum? Ekki var langt síðan kjarasamningar til 3ja ára voru gerðir. En hvað kemur þá til,að atvinnurekendur voru allt í einu svona örlátir við launþega.Jú skýringin er einföld.Ríkið greiddi kauphækkunina! Ríkið lækkaði tryggingagjaldið um 0,5% og það gefur 4,5 milljarða í ár.Þess vegna "gátu" atvinnurekendur hækkað launin.Það er athyglisvert, að ríkið greiði launahækkunina fyrir atvinnurekendur. Ríkið var ekki svona örlátt við aldraða og öryrkja á sl ári eða fyrir jólin! Þá sagði ríkið þvert nei við aldraða og öryrkja og neitaði þeim um leiðréttingu á kjörum sínum til jafns við kjaraleiðréttingu launþega.Þó kostaði sú leiðrétting lítið meira en kauphækkunina,sem ríkið greiddi fyrir atvinnurekendur!
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.