Frv.að almannatryggingum skerðir kjör sumra meðal lífeyrisþega!

Það er ekki aðeins, að tillögur að nýjum lögum um almannatryggingar veiti lífeyrisþegum engar kjarabætur heldur er niðurstaðan enn verri: Sumir hópar lífeyrisþega verða verr settir en áður.Þeirra kjör munu versna. Þetta er afrakstur margra ára vinnu við undirbúning nýrra laga um almannatryggingar!

Tillögurnar gera ráð fyrir,að fækka flokkum; sameina á grunnlífeyri,tekjutryggingu og framfærsluuppbót í einn nýjan flokk lífeyris.Heimilisuppbót verður hins vegar áfram sérstakur flokkur.Nýi flokkurinn verður nákvæmlega að sömu upphæð,ásamt heimilisuppbótinni og gömlu flokkarnir voru samanlagt eða 246 þúsund krónur fyrir skatt hjá einhleypingi, rúmlega 212 þúsund eftir skatt.Frítekjumörk verða felld niður en skerðing annarra tekna en tekna TR 45% nema séreignalífeyrissparnaðar og fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga; þessir tveir síðustu liðir valda ekki skerðingu.Breytingarnar munu koma þokkalega út fyrir þá öryrkja,sem hafa mikla starfsgetu; eru með 50% eða meiri starfsgetu en þeir öryrkjar,sem eru 75% öryrkjar eða meira verða verr settir á vinnumarkaði en áður. Það verður enginn hvati fyrir þá að fara út á vinnumarkaðinn. Eins er með eldri borgara. Ef þeir geta unnið fulla vinnu eða verulega  atvinnu  verða þeir verr settir en áður; munu sæta meiri skerðingu en fyrr. 

Aldurstengd örörkuuppbót verður felld niður en í staðinn kemur 22 þús kr uppbót á mánuði fyrir þá ,sem urðu öryrkjar 24 ára eða fyrr.

Gert er ráð fyrir nýju matskerfi fyrir öryrka,starfsgetumati í stað læknisfræðilegs mats. Þeir,sem eru orðnir 55 ára þurfa þó ekki að fara í það mat en allir undir þeim aldri.Öryrkjabandalagið samþykkti ekki tillögurnar.Það verður því að semja sérstaklega við Öryrkjabandalagið.

Lagt er til,að lífeyrisaldurinn verði hækkaður í 70 ár á 24 árum. Mun aldurinn verða hækkaður um 2 mánuði á ári í 12 ár og síðan um 1 mánuð á ári í önnur 12 ár.Unnt verður að sækja um frestun á töku lífeyris til allt að 80 ára aldurs og mun þá lífeyrir hækka þegar taka hans hefst.

Stjórnvöld munu hugsa gott til glóðarinnar að láta lífeyrisþega sjálfa greiða kostnaðinn við breytingar á kerfi almannatrygginga með því að hækka lífeyrisaldurinn í 70 ár. 

 Ég gerði mér vonir um,að nýjar tillögur um almannatryggingar mundu fela í sér verulegar kjarabætur fyrir aldraðra og öryrkja, þar eð lífeyrir er í dag alltof lágur. En þær vonir brugðust. Það eru engar kjarabætur,heldur kjaraskerðing hjá vissum hópum!

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband