Grunnlífeyrir skertur á ný vegna greiðslna úr lífeyrissjóði!

 

Í tillögum um endurskoðun almannatrygginga er gert ráð fyrir því, að  grunnlífeyrir verði skertur á ný vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Lengi vel var samstaða um það, að ekki mætti hreyfa við grunnlífeyri almannatrygginga.Hann væri heilagur. Og þannig er þetta í Noregi.Þar fá allir grunnlífeyri án tillits til tekna.Á krepputímanum hér var talið nauðsynlegt vegna fjárhagserfiðleika að skerða grunnlífeyri.Félag eldri borgara í Rvk. og LEB mótæltu þessu og kröfðust þess ,að þessi skerðing yrði afnumin. Við því var orðið 2013 eftir þingkosningarnar.Það er því furðulegt,að nú skuli strax eiga að byrja að skerða grunnlífeyri á ný vegna lífeyrissjóða.

Ég tel tillögurnar um endurskoðun almannatrygginga meingallaðar.Stærsti gallinn er sá, að það er engin kjarabót fyrir  lægst launuðu lífeyrisþega, þá sem eingöngu hafa tekjur frá TR. Þeir fá enga hækkun. Þó er það viðurkennt, að ekki sé unnt að lifa af hinum lága lífeyri. Annar stór galli er sá,að skerðingarhlutfallið,  45%, er alltof hátt eins og Landsamband eldri borgara hefur bent á.Í Noregi er engin skerðing og í Danmörku 30% eftir  frítekjumark.Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sendi eldri borgurum bréf fyrir síðustu kosningar og lofaði að afnema allar tekjutengingar almannatrygginga. Samkvæmt því átti að  afnema alveg skerðingu lífeyris aldraðra hjá TR vegna lífeyrissjóða.Það hefði legið beint við að efna þetta loforð við endurskoðun almannatrygginga. En þvert á móti er ný skerðing  tekin upp á grunnlífeyri.

Samkvæmt tillögum um TR eru öll frítekjumörk felld niður.Af því og háu skerðingarhlutfalli leiðir, að skerðing lífeyris aldraðra hjá TR vegna atvinnutekna eykst og því erfiðara  fyrir eldri borgara að vinna,  ef þeir hafa heilsu til.  Skerðing vegna greiðslna úr lífeyrissjóði minnkar lítið þrátt fyrir loforð um að afnema hana alveg.

Núverandi ríkisstjórn lofaði þvi fyrir kosningar 2013 að afturkalla alla kjaraskerðinguna frá 2009.Þar var um 6 atriði að ræða.Þegar stjórnarflokkarnir voru komnir til valda ákváðu þeir að afturkalla 2 atriði þessarar kjaraskerðingar og samþykktu það á sumarþinginu 2013. Var þar um að ræða umrædda skerðingu grunnlífeyris og  afturköllun skerðingar á frítekjumarki vegna atvinnutekna.En þetta hvort tveggja er tekið ti baka með tillögunum um breytingar á almannatryggingum!

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband