Sigurður Ingi efni loforðin við aldraða og öryrkja!

 

 

 

Nýr forsætisráðherra,Sigurður Ingi Jóhannsson,varaformaður Framsóknarflokksins hefur tekið við af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.Það kemur í hlut hans að efna stærsta kosningaloforð flokksins við aldraða og öryrkja:  Eftirfarandi var samþykkt  á flokksþingi Framsóknarflokksins fyrir þingkosningarnar 2013 :Lífeyrr aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar ( kjaragliðnunar) þeirra á krepputímanum. Þetta kosningaloforð var endurtekið af frambjóðendum flokksins í kosningabaráttunni  2013.Það er ekki farið að efna þetta loforð enn .Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavik  sagði að hækka þyrfti lífeyri um 20% til þess að efna þetta loforð.Nú hefur verið ákveðið að flýta næstu þingkosningum til haustsins. Sigurður Ingi hefur þvi stuttan tíma til þess að efna loforðið.

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti það sama fyrir kosningar 2013.Á landsfundi flokksins var eftirfarandi samþykkt: Ellilífeyrir sé leiðréttur STRAX til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009. Hér kemur það alveg skýrt fram á hvern hátt á að leiðrétta lífeyri vegna  kjaragliðnunar krepputímans og  það er tekið fram, að þetta skuli gert strax. Sigurður Ingi, nýr forsætirsáðherra, ætti því ekki að vera í vandræðum með að fá samþykki fjármálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins við mál þetta. Sigurður Ingi er vandaður maður .Ég hygg, að það megi treysta honum til þess að efna þetta stærsta kosningaloforð við aldraða og öryrkja.Það er engin undankoma. Efni ríkisstjórn Sigurðar Inga ekki þetta loforð við aldraða og öryrkja fljótlega bætist það við syndaregistur stjórnarinnar og verða viðbótarrök fyrir því,  að stjórnin fari frá.Stjórnin hefur  hálft ár til þess að efna þetta loforð.

Síðan hefur bætst við ný kjaragliðnun á árinu 2015.Á því ári  hækkuðu lágmarkslaun um 14,5% en lífeyrir hækkaði aðeins um 3%. Hér vantar því 11,5 prósentustg.Ríkisstjórnin hefur ekki lofað  að leiðrétta  lífeyri  vegna þessarar  kjaragliðnunar.En rökin fyrir því að leiðrétta  vegna kjaragliðnunar 2015 eru nákvæmlega þau sömu og rökin fyrir leiðréttingu vegna fyrri kjaragliðnunar.Ég vona,að nýi forsætisráðherrann vilji leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja vegna kjaragliðnunar síðasta árs.Ef hvort tveggja er leiðrétt samtímis þarf að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um rúm 30%. Aldraða og öryrkja munar um þá hækkun.Hún skiptir sköpum um það hvort þeir geti lifað af lífeyrinum eða ekki.Þessi leiðrétting gæti verið liður í því,að stjórnvöld sættist við þjóðina.

Ég skora á Sigurð Inga forsætisráðherra að efna loforðin við aldraða og öryrkja strax.

 

Björgvin Guðmundsson

viðskiptafræðingur

Fréttablaðið 20.apríl 2016

 

 

 





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Leiðrétting/hækkun á lífeyri hefur nokkra sérstöðu í augum forystumanna ríkisstjórnarinnar.

Í öllum kjaraviðræðum launþega er tekist á um beina launahækkun og auðvitað dragast inn í þær viðræður hinar ýmsu hliðarforsendur s.s. efnahagsástand og breytingar á kaupmætti.
Um lífeyri virðast hinsvegar einvörðungu teknar inn í myndina breytingar á kaupmætti þar sem góðir reiknimeistarar geta yfirleitt með orðhemgilshættinum alþekkta- hliðrað staðreyndum svo útkoman "leiði ekki til þensluáhrifa" sem næstum ævinlega fá mikla umfjöllun og vægi samkvæmt því. Fátt virðist ríkisstjórnum okkar hættulegra stöðugleikanum margumrædda en hækkun lífeyris aldraðra og öryrkja.    

Árni Gunnarsson, 20.4.2016 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband