Föstudagur, 22. júlí 2016
Topparnir raka til sín peningum.Aldraðir og öryrkjar fá hungurlús." Ógeðslegt þjóðfélag"
Fyrir skömmu hækkuðu laun forstöðumanna ríkisstofnana,formanna ríkisnefnda og æðstu embættismanna stjórnarráðsins um allt að 48%. Hæstu launin fóru i 1,6-1,7 milljónir á mánuði.En ekki nóg með það.Hækkunin var látin gilda 19 mánuði til baka. Það þýddi,að þeir hæstlaunuðu fengu 30-32 milljónir greiddar í einu lagi sem launauppbót!
Á sama tíma og þetta gerðist voru ýmsir eldri borgarar og öryrkjar að fá bréf frá Tryggingastofnun ríkisins,þar sem þeir voru rukkaðir um háar fjárhæði til baka, þar eð þeir hefðu fengið of mikið greitt í lífeyri í upphafi! Með öðrum orðum: Hungurlúsin,tæpar 200 þúsund krónur og rúmlega 200 þúsund á mánuði eftir skatt, reyndist of há! Það þurfti að klípa af þessum upphæðum. Og hvernig átti fólkið að borga það til baka? Því er ósvarað. Þetta hvort hvegga gerðist um svipað leyti. Misskiptingin i þjóðélaginu kristallaðist í þessu tvennu, himinháum greiðslum til forstöðumanna og æðsu embættismanna og kröfur á aldraða og öryrkja um að greiða til baka. Mér komu þá í hug orð Styrmis Gunnarssonar fyrrverandi ritstjóra: Þetta er ógeðslegt þjóðfélag. Mér þóttu þessi orð fráleit í fyrstu. En ég held ég taki undir þau í dag.
Styrmir sagði við Rannsóknarnefnd alþingis: Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár.Þetta er ógeðslegt þjóðfélag. Þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp,það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt.Það er bara tækifærismennska,valdabarátta.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:24 | Facebook
Athugasemdir
Tek heilshugar undir hvert orð. Ógeðslega ógeðslegt og ekkert annað. Báknið er ekki til fyrir fólkið lengur, heldur fólkið orðið að báknsfóðri. Alger viðbjóður.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 22.7.2016 kl. 10:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.