Þriðjudagur, 6. september 2016
Hálfónýtt frv.um almannatryggingar lagt fram.Engin hækkun fyrir þá lægst launuðu!
Frumvarp félagmálaráðherra og ríkisstjórnarinnar um breytingu á almannatryggingum hefur verið útbýtt á alþingi.Mig undrar það, þar eð það er lítið gagn í því frumvarpi fyrir aldraða og öryrkja.Alvarlegasti gallinn á frumvarpinu er sá, að það er engin hækkun í frumvarpinu á lífeyri þeirra aldraðra og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur frá almannatryggingum.Annar stór galli er sá, að skerðing lífeyrs TR eykst hjá þeim sem hafa atvinnutekjur.Samt stendur í greinargerð með frv ,að ætlunin sé að greiða fyrir atvinnuþátttöku.Dregið er lítilsháttar úr skerðingu lífeyris TR vegna greiðslna úr lífeyrssjóði.
Öryrkjabandalagið lagðist gegn frumvarpinu í nefndinni,sem undirbjó frumvarpið.Lagt var til þar, að í stað þess læknisfræðilega örorkumats,sem gildir í dag, kæmi svokallað starfsgetumat, sem byggðist á því að byggja matið á því hvað hver og einn gæti unnið mikið .Öbi sagði, að undirbúa yrði slíka breytingu miklu betur. Félagsmálaráðherra tók af þeim sökum út kaflann um starfgetumat og frestaði honum .Félag eldri borgara í Reykjavik treysti sér ekki til þess að styðja frumvarpið, meðal annars vegna þess, að frv gerir ráð fyrir því , að grunnlífeyrir falli niður. Landssamband eldri borgara gerði margar alvarlegar athugasemdir við frv. Meðal annars gerði LEB athugasemd við það hvað skerðingarhlutfall ætti að vera hátt og benti á, engin skerðing væri í Noregi og aðeins 30% á hæstu tekjum í Danmörku.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,að lífeyristökualdur verði hækkaður úr 67 árum í 70 ár. Mér er til efs, að það sé rétt skref. Lífeyristökualdur er miklu lægri á hinum Norðurlöndunum en hér. Til dæmis er hann 63- 65 ár í Finnlandi og víða er hann 60-65 ár.Samt vinna Íslendingar miklu meira en gerist í grannlönndunum.Lífeyristökualdur ætti því að vera lægri hér en ekki öfugt.Meiningin er að hækka aldurinn hér á löngum tíma, um 2 mánuði á ári á 24 árum; byrja hækkunina um áramót. Þetta verður heilmikill sparnaður fyrir ríkið.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.