Fimmtudagur, 8. september 2016
Stjórnvöld hér neikvæð í garð aldraðra og öryrkja!
Margir undrast það hve neikvæð stjórnvöld hér eru gagnvart eldri borgurum. Þessu er á annan veg farið í grannlöndum okkar. Þar eru stjórnvöld jákvæð í garð aldraðra og leitast við að fylgjast með því á hvern hátt þau geti létt undir með lífsbaáttu þeirra. Hér standa stjórnvöld gegn kjarabótum aldraðra eins lengi og þau telja það nokkurn kost. Það má eiginlega segja, að neyða verði stjórnvöld hér til þess að veita öldruðum sjálfsagðar og eðlilegr kjarabætur í takt við launahækkanir launþega. Grunnlífeyrir er þrefalt hærri í grannlöndum okkar en hér. Og heildarlífeyrir er miklu hærri í nágrannalöndum okkar.Þá þekkjast þar ekki þessar miklu tekjutengingar, sem hér eru.
Fyrir alþingiskosningarnar 2013 fór ég sem formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík á fund formanna allra þingflokka stjórnmálaflokkanna og ræddi við þá um kjaramál aldraðra. Með mér í för voru 2-3 fulltrúar kjaranefndar. Fundir þessir gengu nokkuð vel. Stjórnarandstöðuflokkarnir á þingi voru áberandi jákvæðari gagnvart erindi okkar um kjarabætur. Leiddu viðræður okkar við þá til þess, að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn tóku upp í stefnuskrár sínar 2013 ýmsar óskir kjaranefndar um kjarabætur aldraðra. Hreyfingin tók erindi okkar svo vel, að Margrét Tryggvadóttir þingmaður flokkksins flutti þingmál í samræmi við okkar óskir.Það náði þó ekki fram að ganga.
En björninn var ekki unninn þó Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tækju mikilvæg kjaramál eldri borgara upp í stefnuskrár sínar. Við í kjaranefndinni fögnuðum þessu en gleði okkar stóð ekki lengi. Umræddir flokkar stóðu ekki við fyrirheit þau, sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum í stefnuskrám sínum. Þeir hafa ekkert gert í því að efna mikilvægasta fyrirheitið, þ.e. að leiðrétta lífeyri vegna kjaragliðnunar krepputímans. Hitt fyrirheitið var að afturkalla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá árinu 2009. Þar var um 6 atrði að ræða. Aðeins 3 þeirra hafa verið afturkölluð og í rauninni aðeins 2, þar eð eitt rann úr gildi af sjálfu sér.Það var tímabundið.
Það er verkefni sálfræðinga að rannsaka hvers vegna stjórnmálamenn og ráðamenn hér hafa neikvæða afstöðu til eldri borgara . Það getur hver maður séð, að kjör þeirra lífeyrisþega,sem hafa einungis tekjur frá almannatryggingum, eru óásættanleg. Það væri einnig eðlilegt og röklegt að stjórnvöld og stjórnmálamenn væru jákvæðir í garð eldri borgara vegna þess hve mikið eldri kynslóðin hefur gert til þess að skapa það þjóðfélag,sem við búum í.Vonandi verður breyting á.
Björgvin Guðmundsson
pistlahöfundur
Fréttablaðið 8.sept.2016
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.