Föstudagur, 16. desember 2016
"Góðærið nær ekki til aldraðra g öryrkja" !
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði nýlega,að Íslendingar hefðu aldrei haft það eins gott og í dag! Á sama tíma og hann segir þetta berast þessar fréttir: Fjölskylduhjálpin segir,að fleiri leiti þangað en áður eftir mataraðstoð og neyðin sé mjög mikil.Margir eldri borgarar og öryrkjar leiti þangað.Og mikil neyð ríki hjá mörgum,sem illa fóru út úr hruninu; þeir mistu jafnvel íbúðir sínar og verði nú að leigja og greiða þá okurleigu,sem sett sé upp í dag.Húsnæðismál öryrkja séu verri en nokkru sinni fyrr.Og hið sama sé að segja um húsnæðismál ungs fólks. Það geti ekki keypt sér húsnæði vegna þess hve verðið sé orðið hátt og útborgun há.Og það á einnig erfitt með að leigja vegna okurleigu.Æ fleiri verða að neita sér um að fara til læknis vegna efnahags.
Lífeyrir aldraðra og öryrkja er enn við fátæktarmörk.Eygló félagsmálaráðherra og endurskoðunarnefnd TR lagði fram frv að nýjum lögum með 0 krónu hækkun lífeyris hjá þeim,sem höfðu aðeins lífeyri frá TR.Þegar Páll Valur Björnsson fyrrverandi þingmaður spurði hvers vegna ekki væri lögð til nein hækkun,svaraði Eygló því til,að það væru svo fáir sem hefðu einungis lífeyri frá TR! Ég sagði þá að þó það væri aðeins einn sem ætti ekki fyrir mat,væri það einum of mikið.Eftir 1000 manna mótmælafund eldri borgara í Háskólabíó,þar sem púað var á Bjarna,gaf ríkisstjórnin sig og slakaði örlítið á. En ekki voru breytingarnar stórmannlegar: Lífeyrir sem var 185 þús kr á mánuði í frumvarpinu var hækkaður um 10 þús kr. á mánuði í 195 þús kr á mánuði eftir skatt.Þetta gildir fyrir gifta og þá,sem eru í sambúð.Einhleypir áttu að fá 20 þúsund kr hækkun.Góðærið hefur því ekki komið til aldraðra og öryrkja og kemur ekki til þeirra um áramót.Spurning er hvar góðærið er? Það er sennilega í Sjálfstæðisflokknum og hjá þeim,sem geyma fjármuni sína í skattaskjólum!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.