Sunnudagur, 18. desember 2016
Greiðsluþátttaka sjúklinga hér í heilbrigðisþjónustu miklu meiri en á hinum Norðurlöndunum!
Heilbrigðisráðherra hefur gefið út reglugerð um hámarksgreiðsluþáttöku sjúklinga í kostnaði við heilbrigðisþjónustu og lyfjakaup.Reglugerðin veldur miklum vonbrigðum vegna þess hve hátt greiðsluþakið er en það er miklu hærra en á hinum Norðurlöndunum.Hámarksgreiðsluþátttala einstaklinga í heilbrigðisþjónustu á 12 mánaðatímabili er er 49.200- 69.700 kr eftir því hve mikið viðkomandi sjúklingur notar heilbrigðisþjónustu 6 mánuðina á undan 12 mánaða tímabilinu.En hámarksgreiðsluþátttaka fyrir lyf er 41000 kr á 12 mánaðatímabili.Alls er hér samanlagt um að ræða 90.200-110.700 fyrir hvort tveggja.Það er alltof hátt. Í Svíþjóð er sambærileg tala 40 þúsund eða aðeins 45% af því sem það er lægst hér..Í Noregi er sambærileg tala aðeins 29000 kr á 12 mánaða tímabili.
Greiðsluþakið hjá öldruðum og öryrkjum er 46.467 kr fyrir heilbrigðisþjónustu á 12 mánaða tímabili.Fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf samanlagt er greiðsluþakið 87.476 kr fyrir aldraða og öryrkja. Það er alltof hátt með hliðsjón af því hve lífeyrir aldraðra og öryrkja er lágur.
Með því að hagvöxtur er nú meiri hér en á hinum Norðurlöndunum og Ísland er nú orðið eitt vinsælasta ferðamannalandið og hefur mjög miklar tekjur sem slíkt er óskiljanlegt hvers vegna stjórnvöld bjóða Íslendingum ekki sömu kjör og hin Norðurlöndin að því er varðar greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu og lyfjakaupum.Ísland býður eldri borgurum og öryrkjum mun verr kjör en hin Norðurköndin gera og nú bætist það við að Ísland ætlast til,að íslenskir sjúklingar greiði mun stærri hlut í heilbrigðisþjónustu og lyfjakaupum en íbúar hinna Norðurlandanna.Það er eins og ráðamenn hér haldi,að það sé enn kreppa hér
Það er kominn tími til,að Íslendingar njóti sömu kjara og íbúar hinna norrænu landanna..
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.