Mánudagur, 20. febrúar 2017
Heilsugæsluþjónusta verði gjaldfrjáls
Heilsugæslujónusta á að vera gjaldfrjáls.Það er tillaga Samfylkingarinnar á alþingi.Einnig leggur Samfylkingin til, að hámarksgreiðsla sjúkratryggðra fyrir læknisþjónustu utan heilsugæslu skuli vera 35000 kr á ári.Mér líst vel á þessa tillögu.Enginn á að þurfa að neita sér um læknishjálp af efnahagástæðum.Þá leggur Samfylkingin einnig til, að dregið verði úr kostnaði aldraðra og öryrkja við tannlækningar.
Ef þessar tillögur ná fram að ganga verður gjald fyrir læknisþjónustu miklu lægra en það gjald sem fyrrverandi heilbrigðisráðherra lagði til og verður nær því gjaldi sem gildir fyrir læknishjálp á hinum Norðurlöndunum.Samfylkingin leggur einnig til á alþingi,að dregið verði verulega úr greiðslum aldraðra fyrir tannlækningar en sá taxti hefurá verið óbreyttur frá árinu 2004.-Það er mjög mikikvægt ap hafa taxta fyrir læknisþjónustu það lága,að allir geti notfært sér þá þjónustu.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.