Miðvikudagur, 8. mars 2017
Bretar misreiknuðu Brexit
Bretar virðast hafa misreiknað Brexit,útgönguna úr ESB.Þeir hafa haldið,að þeir gætu fyrirstöðulaust verið í Evrópska efnahagssvæðinu ( EES) þó þeir færu úr ESB. En svo er ekki. EES er samband ESB og EFTA.Það getur enginn verið í EES nema vera í öðru hvoru bandalaginu.Ef til vill munu þeir sækja um undanþágu en ég er ekki viss um,að hún fáist.Og ef svo ólíklega færi að þeir fengju undanþágu til þess að vera í EES þyrftu þeir áfram að samþykkja frjálsan flutning vinnuafls og frjálsa för fólks innan EES en það var einn megin tilgangur Breta með úrsögn að minnka aðstreymi vinnuafls og fólks frá ESB til Bretlands.
Lilja Alfreðsdóttir alþingismaður gerði það að umtalsefni á alþingi,að utanríkisráðherra og formaður utanríkismálanefndar væru ekki sammála í utanríkismálum.Formaður utanríkismálanefndar,Jóna Sólveig Elína, hefði sagt í viðtali við fréttavef Washington Times, að EFTA dygði ekki lengur til þess að tryggja hagsmuni Íslands.En í stjórnarsáttmálanum segði,að ríkissjórnin mundi byggja samstarf við ESB á samningnumn um EES!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.