Föstudagur, 10. mars 2017
Óstjórn á fjármálum ríkisins!
Stjórnarherrarnir tala mikið um það, að fjármál ríkisins séu í góðu lagi og afgangur á fjárlögum. En hver er staðreynd málsins.Hún er þessi: Allir innviðir samfélagsins eru vanfjármagnaðir.Það vantar fjármagn í heilbhrigðiskerfið,sérstaklega í Landspítalann en þar liggur við neyðarastandi og í hjúkrunarheimilin; það vantar fjármagn í velferðarkerfið,menntakerfið og samgöngukerfið en miklar deilur eru nú í þjóðfélaginu um samgöngukerfið vegna niðurskurðar á samgönguáætlun.En nýr samgönguráðherra lét það verða sitt fyrsta verk að skera niður samgönguáætlun,sem samþykkt var á alþingi í góðri sáttt í oktober 2016.Það eru skornar niður nauðsynlegar vegaframkvæmdir á Vestifjörðum,Austfjörðum og á Suðurlandi en þó eru innheimtir af bíleigendum 70 milljarðar á ári í bensíngjöldum og bílagjöldum,sem eiga að fara í vegina en fara að mestu leyti í eyðsluhít ríkissjóðs.Það er auðvelt að sýna afgang á fjárlögum með því að borga ekki nauðsynleg og tilskilin framlög til innviða þjóðfélagsins.Þetta er ekki góð stjórn á fjármálum ríkisins.Þetta er óstjórn.Annað hvort verður að afgreiða fjárlög með halla og láta nauðsynleg framlög í innviðina eða að afla nægilegra viðbótartekna.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:12 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.