Sunnudagur, 12. mars 2017
Hundsar þingið og sker niður framlög til vegamála!
Gífurleg óánægja er nú um allt land vegna niðurskurðar Jóns Gunnarssonar ráðherra á framlögum tií vegamála.Jón Gunnarsson hundsar þingið og sker niður framkvæmdir sem samþykktar höfðu verið einróma með samgönguáætlun haustið 2016.Óánægjan er svo mikil,að vegum hefur verið lokað í mótmælaskyni.Síðasta föstudag ræddi ríkisstjórnin málið og lét svo sem hún ætlaði að auka eitthvað framlög til vegamála á ný en það var allt mjög loðið og óákveðið.
Fjögurra ára samgönguáætlun var samþykkt á þinginu haustið 2016 mótatkvæðalaust. Með nýrri samgönguáætlun ásamt fjölda breytingartillagna átti að verja um það bil 100 milljörðum í samgöngur á næstu fjórum árum. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þá þingmaður Samfylkingarinnar sagði fyrstu framlagningu samgönguáætlunar hafa verið rýra í roðinu: Þess vegna komu fram fjölmargar breytingartillögur og viðaukatillögur sem góðu heilli voru flestar samþykktar.Ekki síst það sem kom inn á síðustu metrunum, ríflega milljarður til viðhalds vega, héraðs- og tengivega. .
Fjöldi samgöngubóta í norðvesturkjördæmi
Ólína fagnaði þeim fjölda framkvæmda sem ráðast átti í í norðvesturkjördæmi og nefndi Dýrafjarðargöng, bætur á vegi að Látrabjargi og í Árneshrepp á Ströndum og um Skógarströnd á norðanverðu Snæfellsnesi. Einnig er á samgönguáætluninni bættur vegur um Gufudalssveit. Sérstaklega fagnaði Ólína samþykkt breytingartillögu hennar um að veita fé til undirbúnings jarðganga milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar.
Samgönguinnviðir geti kiknað
Það er gríðarlega mikið álag á samgönguinnviði okkar, ekki síst vegna mikillar fjölgunar ferðamanna á síðustu árum, og við verðum að gefa í ef við ætlum að halda í við þá þróun. Samanburðarlönd verja fjórum sinnum meiru en Íslendingar í samgöngumál.Þar er hagvöxtur sáralítill!
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.