Fimmtudagur, 23. mars 2017
Þingmenn gagnrýna sölu Arion til vogunarsjóða.Ísland á betra skilið!
Theodóra S.Þorsteinsdóttir formaður þingflokks Bjartrar framtíðar gagnrýndi það harðlega á alþingi, að það væri verið að selja vogunarsjóðum 29% hlut í Arion banka.Hún undraðist það, að ráðamenn væru að fagna því að vogunarsjóðir væru að kaupa í bankanum. Hún kvaðst ekki geta tekið undir fögnuð þeirra.Fjölskylda hennar varð fyrir barðinu á vogunarsjóðunum í kreppunni og gerði Theodóra kvikmynd um málið,sem vakti mikla athygli.Thodóra sagði,að íslenska þjóðin ætti betra skilið en að selja vogunarsjóðum bankann.Þórunn Egilsdóttir formaður þingflokks Framsóknarflokksins tók undir orð Theodóru.Hún gagnrýndi einnig söluna til vogunarsjóða og sagði,að íslenska þjóðin ætti betra skilið.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.