Laugardagur, 16. september 2017
Bjarni ætlaði að sniðganga forseta Íslands!
Það vakti athygli,þegar Bjarni Benediktsson fráfarandi forsætisráðherra var að tala á blaðamannafundinum í gær,að hann minntist ekki á forsetann, þegar hann var að tala um þingrof.Hann sagði: Ég ætla að láta kjósa.Hann talaði ekki einu sinni um, að hann ætlaði að leggja þá tillögu fyrir forsetann.Sigmundur Davíð var gagnrýndur fyrir að hafa ætlað að fá heimild Ólfs Ragnars fyrir þingrofi og Ólafur Ragnar sagði,að Sigmundur Davíð hefði verið með skjalatösku með sér.Ólafur Ragnar gaf sér að plagg um þingrof hefði verið í töskunni! Sigmundur Davíð lagði hins vegar aldrei fram neitt plagg um þingrof. En Bjarni Ben gengur feti framar en Sigmundur Davíð,þar eð hann tilkynnir þingrof án þess að leggja það fyrir forsetann.Það er hins vegar óheimilt að rjúfa þing, ef meirihluti er þar fyrir annarri ríkisstjórn.Bjarni Ben kannaði aðeins meirihlutastjórn undir forustu Sjálfstæðisflokksins en hann kannaði að sjálfsögðu ekkert hvort stjórnarandstaðan og samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins gætu myndað meirihlutastjórn. En forsetinn sá við Bjarna,þar eð hann boðaði alla leiðtoga stjórnmálaflokkanna á þingi til Bessastaða í dag. Þannig mun forsetinn komast að raun um það hvort annar meirihluti er í spilunum á þingi.Gott framtak hjá forseta.
Björgvin Guðmundsson
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.