Sviðin jörð eftir kvótakerfið!

Reynt er nú að kaupa Vinnslustöðina frá Eyjum til þess að ná kvótanum í burt þaðan.Það  eru eigendur Brims,Guðmundur og Hjálmar Kristjanssynir,sem eru að reyna að kaupa Vinnslustöðina.Guðmundur  keypti  Útgerðarfélag Akureyrar  með hjálp Landsbankans og sagðist ætla að reka fyrirtækið  áfram frá Akureyri en sveik það.Nú reynir hann að endurtaka sama leikinn í Eyjum. Vonandi hrinda Eyjamenn árás þeirra bræðra.

Morgunblaðinu ofbýður nú svo kvótabraskið út um allt land,að það getur ekki orða bundist í forustugrein í dag og segir,að það sé  sviðin jörð víða um byggðir landsins vegna kvótakerfisins. Blaðið nefnir serstaklega Flateyri og þá hættu,sem nú vofi yfir Eyjum. Segir blaðið,að Einar K. Guðfinnsson sjávarúvegsráðherra verði að taka taumana.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

En það er skelfilegur leiðari í Fréttablaðinu sem þyrfti að svara af fróðum mönnum

María Kristjánsdóttir, 2.6.2007 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband