Gott framtak Ingibjargar Sólrúnar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,utanríkisráðherra,hefur ákveðið að láta rannsaka  hugsanlegt fangaflug til Íslands. Þó nokkuð margar flugvélar frá Bandaríkjunum  millilentu á flugvöllum hér á leið til Evrópu eða þaðan og aftur heim til Bandaríkjanna. Grunur leikur á að þessar flugvélar hafi verið að flytja fanga í fangelsi í Evrópu,þar sem til hafi staðið að pynta fangana. Nú hefur verið upplýst,að a.m.k. í Póllandi og Rúmeniu voru slíkir fangar í fangageymslum.Fram hefur komið að mál þetta var rætt sem algert trúnaðarmal hjá NATO haustið 2001. Þetta mál hefur áður verið rætt hér á landi og hafa ráðamenn hér þá ávallt svarað því til,að þeim væri ókunnugt um nokkuð fangaflug hingað. Nú ætlar Ingibjör Sólrún sem sagt að fá hið sanna fram og það er vel.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband