Þriðjudagur, 31. júlí 2007
Skuldir heimilanna aukist meira en eignir
Í tengslum við birtingu álagningarskrár skatta hefur ríkisskattstjóri birt ýmsar upplýsingar um skattlagninguna og aukingu eigna og skulda.Í ljós kemur,að skuldir hafa aukist meira en eignir milli ára.Skuldir heimilanna voru 1113 milljarðar um síðustu áramót og höfðu aukist um 21% milli ára en eignir heimilanna höfðu aukist um 14,9 % milli ára og námu 2800 milljörðum í lok sl. árs.Skuldaaukning heimilanna er mikið áhyggjuefni. Fyrir 6 árum skulduðu heimilin 550 milljarða kr en nú hafa þessar skuldir tvöfaldast eða aukist um 103% í 1113 milljarða sem fyrr segir.Eignir heimilanna hafa á sama tíma aukist um 92% eða um 556 milljarða.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þó að nokkuð kreppi að í reksstri margra heimila er þó nokkur huggun í góðri afkomu bankastofnana. Kv Jón H
Jón Halldór Guðmundsson, 1.8.2007 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.