Laugardagur, 29. september 2007
Geir:Gera á betur fyrir aldraða og öryrkja
Geir Haarde,forsætisráðherra,hélt ræðu á fundi flokksmanna sinna í morgun og ræddi stjórnarsamstarfið.Sagði Geir ekki hafa verið áhuga fyrir því að mynda kyrrstöðuríkisstjórn, samstarfið við Samfylkinguna hafi gert mögulegt að gera víðtækari breytingar en tekist hefði með því að halda áfram fyrrverandi stjórn eða með annars konar samstarfi.
Forsætisráðherra sagði sterka stöðu ríkissjóðs gefa tækifæri til að gera betur en áður, t.a.m. fyrir eldri borgara og öryrkja. Þá sé átak hafið í að styrkja innviði á borð við samgöngur og fjarskipti.
Geir sagði unnt að gera frekari skattaumbætur, sem hann sagði annað orð yfir skattalækkar.
Það ber að fagna ummælum Geirs um málefni aldraðra og öryrkja.Satt að segja eru menn orðnir hissa á seinagangi stjórnarinnar í þeim málum.Einnig er ánægjulegt,að stjórnin ætli að lækka skatta.En það gildir um báða þessa málaflokka,skattmál og mál aldraðra,að menn vilja sjá framkvæmdir ekki bara orð.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.