Undanhaldið hafið

Stjórn Reykjavík  energy invest hefur ákveðið að allir starfsmenn fyrirtækisins fái að kaupa jafnstóra hluti í fyrirtækinu á sama gengi. Er þetta breytt stefna frá því sem áður gilti en áður hafði verið ákveðið að sérstakir gæðingar og vildarvinir  ráðandi manna í fyrirtækinu og Orkuveitunni  fengju að kaupa stóra hluti á hagstæðu gengi. Ber að  fagna þessari stefnubreytingu. En jafnframt hefur borgarstjóri viðrað þá hugmynd að Orkuveitan dragi sig út úr  áætturekstri erlendis.Þessi hugmynd kemur fram,þar eð margir áhrifamenn í Sjálfstæðiflokknum í Reykjavík eru andvígir því að Orkuveitan,fyrirtæki borgarbúa sé að fara út í áhættusaman atvinnurekstur erlendis í samkeppni við einkaaðila.Er ljóst,að  mál þetta hefur ekki verið undirbúið nægilega vel áður en farið var á stað með það. Vegna slæms undirbúnings hefur mál þetta orðið eitt allherjar klúður.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Hefði þá bara verið best að halda áfram með Lina.net? Það var raunar alveg öfugt við þetta. Þá á ég við að markmið þess var að stuðla að samkeppniu á innanlends markaði. En REI snýst um samstarf á utanlandsmarkaði.  Reyndar var ýmislegt annað ólíkt í þessum málum, en er Björn Ingi sonur Alfreðs?

Jón Halldór Guðmundsson, 7.10.2007 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband