Mánudagur, 15. október 2007
ÍIhaldið styður að opinber orkufyrirtæki séu í samkeppnisrekstri.Átti að fella Vilhjálm?
Hvað felldi Sjálfstæðisflokkinn nú? Það var sundrung í eingin röðum. Upp kom alvarlegur ágreiningur meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Orkuveitu Reykjavíkur og útrásarfyrirtæki þess ,REI. Enda þótt Guðlaiugur Þór fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og nú ráðherra, hafi flutt tillöguna í stjórn Orkuveitunnar um stofnun Reykjavik Energy Invest ( REI) og enginn ágreiningur verið um það mál þá í röðum sjálfstæðismanna snérust nokkrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gegn málinu og ætluðu að nota það gegn borgarstjóra. Hér virðist hafa verið um hreina valdabaráttu innan Sjálfstæðisflokksins að ræða. Nú segja sjálfstæðismenn, að þeir séu á móti því að orkufyrirtæki sveitarfélaga og hins opinbera séu í samkeppnisrekstri. En þeir áttu sjálfir tillöguna um stofnun slíks fyrirtækis hjá Orkuveitu Reykjavíkur og þeir hafa sjálfir stutt stofnun slíks fyrirtækis á vegum Landsvirkjunar. Þannig að það er alger fyrirsláttur hjá sjálfstæðismönnum,að þeir vilji ekki að orkufyrirtæki séu
i samkeppnisrekstri.En nýju mennirnir í Sjálfstæðisflokknum tefldu of djarft og þeir telfdu af sér enda óvanir í stjórnmálum.Þeir ætluðu að koma Vilhjálmi,borgarstjóra frá.Þeim lá svo á að komast til valda . Þeir gátu ekki beðið til næstu kosninga. En þeir skutu sjálfa sig í fótinn. Þeir tóku sína eigin gröf´.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sjálfstæðismenn eru komnir í hring í orkumálunum. Þeir eru komnir í mótsögn við eigin gerðir. Þeir hafa skaðað trúverðugleika sinn. Mér finnst trúlegt að Geir hafi afstýrt enn meiri hneisu með aðkomu sinni að málinu.
Svo á Vilhjálmur erfitt með að útskýra hvernig ahnn vissi ekki um 20 ára samninginn, sem Bjarni kynnti fyrir honum á heimili hans á minnisblaði.
Jón Halldór Guðmundsson, 15.10.2007 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.