Mikil misskipting í þjóðfélaginu

Í tengslum við nýafstaðinn ársfund Alþýðusambands Íslands átti Morgublaðið viðtöl við marga fulltrúa,sem sátu fundinn. Áberandi var,að flestir þeirra töluðu um aukna misskiptingu og ójöfnuð í þjóðfélaginu  og nauðsyn þess    að bæta þar úr. Er ljóst,að þetta verður eitt stærsta málið í næstu kjarasamningum. Krafan um stórhækkun lægstu launa og ráðstafanir gegn missskiptingu verður aðalmál    næstu kjarasamninga.Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að draga eigi úr ójöfnuði. Ríkisstjórnin ætti í samræmi við það að geta komið til móts við kröfu verkalýðshreyfingarinnar um að gera ráðstafanir til   þess að draga úr missskiptingu og ójöfnuði. Morgunblaðið hefur nú tekið sér stöðu með þeim sem berjast gegn misskiptingu í þjóðfélaginu. Forustugrein Mbl. í dag tekur ákveðna afstöðu gegn misskiptingu og ójöfnuði og nauðsyn aðgerða.Það ber að fagna þessari afstöðu Morgunblaðsins.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Allmörg mikilsverð mál ber hátt í umræðunni í dag.  Meðal þess er ójöfnuður og misskipting.  Annað mál er kjör örykja og aldraðra.  Eitt mál enn vil ég nefna og það er umræðan um sölustaði áfengis.  Ýmsir vilja halda því fram að bætt aðgengi auki enn áfengisbölið, sem er þó nógu mikið fyrir finnst okkur öllum.

Ég held að með þvi að bæta lífskjör almennings og gera til dæmis skólunum betur kleift að sinna öllum börnum á uppbyggilegan hátt, þá sé unnt að veita vímuefnavandanum viðnám.

Gott atlæti og sjálfsvirðing og verkefni við hæfi fyrir unga fólkið, leiðir af sér hamingjusamari og heilbrigðari einstaklinga.

Ég fagna mjög að Morgunblaðið skuli taka þessi mál upp á sína arma. 

Jón Halldór Guðmundsson, 24.10.2007 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband