Þriðjudagur, 23. október 2007
Sameiningin ógild
Sameining Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Invest er ógild.Fundurinn,sem ákvað sameininguna var ekki boðaður með löglegum fyrirvara. Boða átti fundinn með 7 daga fyrirvara en fundurinn var boðaður með innan við 1 dags fyrirvara. Lögmæti fundarins hefur verið kært til héraðsdóms. En auk þess var samningur um samruna útrásarfyrirtækjanna ( REI og GGI) ekki kynntur nægilega vel fyrir borgarfulltúum.T.d. liggur nú fyrir,að hvorki borgarstjóri né óbreyttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vissu um 20 ára einkarétt REI á þjónustu og útrásarverkefni frá Orkuveitunni.Hinir óbreyttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vissu ekki um ráðgerða sameiningu útrásarfyrirtækjanna fyrirfram.Hér er svo stór mál að ræða að kynning gagnvart borgarfulltrúum verður að vera í fullkomnu lagi .Það á bæði við um sameiningu útrásarfyrirtækjanna en einnig og ekki síður um 20 ára einkaréttarsamninginn.Fræðimenn í stjórnsýslu telja,að embættismönnum beri skylda til þess að upplýsa stjórnmálamenn vel og ítarlega um mikilvæg mál. Embættismönnum og formönnum Orkuveitu og REI bar skylda til þess að upplýsa stjórnmálamenn nægilega vel um málið. Með því að það var ekki gert ber að taka málið allt upp á ný.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég er í öllum meginatriðum alveg sammála þessu.
Þó eitt, reyndar meira til gamans; Það var nú ýmislegt reynt til að kynna þennan 20 ára samning fyrir stjórnmálamönnum, var það ekki?
En hitt er svo alveg ljóst að, þegar fundur er boðaður með svo stuttum fyrirvara, er varla að kjörnir fulltrúar, sem þurfa oft að taka mikilsverðar ákvarðanir, geti kynnt sér málsgögn, hvað þá að þeir hafi ráðrúm til samráðs við samstarfsmenn sína.
Ég held að, einmitt til að stuðla að vandaðri ákvarðanatöku, sé áskilinn þessi tiltekni fundarboðsfrestur.
Jón Halldór Guðmundsson, 24.10.2007 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.