Föstudagur, 9. nóvember 2007
Bankarnir bregðast húskaupendum
Kaupþing hefur tilkynnt,að framvegis muni vextir íbúðalána hækka við sölu fasteigna, sem fengu lága vexti ( 4,15%) við kaup þeirra og lántöku hjá KBbanka.Þegar bankarnir buðu lága vexti á íbúðalánum fyrir nokkrum árum og lánuðu 90-100 % af verði fasteigna spáðú margir því,að þetta mundi ekki standa lengi. Bankarnir ætluðu að reyna að koma Íbúðalánasjóði út af markaðnum með því að bjóða betri kjör en sjóðurinn. En Íbúðalánasjóður stóð þessa atlögu af sér. Hann svaraði með jafnlágum vöxtum og 90% lánum. Nú sjá bankarnir að ekkert fararsnið er á Íbúðalánasjóði og þá stórhækka þeir vexti. Ljóst er að það er alger nauðsyn,að ´Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd. Sjóðurinn er eina trygging húsbyggjenda og húskaupenda.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef við ætlum að stuðla að því að fólk sé ekki ofurselt bönkunum oh ekki síst fyrir landsbyggðina, þar sem bankarnir veita takmarkaða fyrirgreiðslu er algjör nauðsyn að Íbúðalánasjóður starfi áfram í óbreyttri mynd og verði ekki seldur.
Jón Halldór Guðmundsson, 11.11.2007 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.