Framsókn vill fá hlutdeild í góðri einkunn Íslands

Alþingi ræddi  þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna  í gær en þar er þjóðum heims raðað eftir ýmsum þáttum,einkum  lífslíkum,menntun og  meðalframleiðslu á mann.Skýrsla sú,sem birt var í gær byggist á könnun á árinu 2005. Framsóknarmenn á alþingi spruttu upp og kváðust eiga þátt í góðri einkunn Íslands 2005,þar eð þeir hefðu þá verið í ríkisstjórn og mörg ár á undan. Það má til sanns vegar færa.En á sama hátt má segja,að allir flokkar og öll þjóðin eigi þátt í þeim framförum sem orðið hafa á Íslandi. Ekki lengist meðalaldur Íslendinga við setu einnar ríkisstjórnar,jafnvel ekki þó Framsókn sitji í henni.Sama er að segja um menntun þjóðarinnar. Uppbygging menntunar tekur langan tíma og er löng þróun. Allir stjórnmálaflokkar hafa þar komið við sögu.Þjóðarframleiðslan byggist einnig á langri þróun og uppbyggingu og ytri aðstæður hafa mikil áhrif á þjóðarframleiðluna. Að  sjálfsögðu skiptir miklu máli,að  stjórnvöld skapi rétt umhverfi og réttar aðstæður fyrir framleiðslu og atvinnulíf.En það sem stjórnvöld geta fyrst og fremst gert er að skipta framleiðslu og lífsgæðum réttlátlega milli þegna þjóðfélagsins. Könnun Sameinuðu þjóðanna mældi ekki hvernig til hefði tekist í því efni. Núverandi ríkisstjórn verður fyrst og fremst dæmd eftir því hvernig henni tekst í því efni.

Björgvin Guðmundsson

 

elagsins


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband