Sunnudagur, 9. desember 2007
Ríkið græðir á afnámi tekjutenginganna
Árið 2006 námu skerðingar á bótum ellilífeyrisþega 1663 milljónum króna.Um áramótin 2006 og 2007 dró úr þessum skerðingum og námu þær 600 milljónum kr. á árinu 2007. Ef 30 % eldri borgara fara út a vinnumarkaðinn,eða um 4000 manns, og hafa meðaltekjur fær ríkið í skatttekjur 4 milljarða króna eða 3400 milljónum meira en nemur kostnaði ríkisins við afnám skerðinganna. Samkvæmt þessum tölur græðir rikið á afnámi tekjutenginga en ekki öfugt.
Framangreindar tölur eru úr könnun Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst og voru birtar í mars sl. Þær byggjast á vísindalegum könnunum rannsóknarsetursins og hljóta því að vera marktækar. En ef þessar tölur eru réttar þá kostar það ríkið ekki neitt að afnema tekjutengingar eldri borgara heldur þvert á móti græðir rikið á þeim. En ríkisstjórnin gerði mjög mikið úr því hvað þetta kostaði ríkið mikið af afnema tekjutengingarnar,það er alltaf tíundað mjög mikið hvað hlutirnir kosti þegar eldri borgarar eiga í hlut en minna hirt um það þegar fjallað er um gæluverkefni stjórnmálamanna.Fullk ástæða er til þess að ríkið birti þá útreikninga,sem liggja til grundvallar ákvörðun um afnám tekjutenginga
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.