Sagan af 5 milljörðunum

Fimm milljarðarnir!

Ríkisstjórnin gaf yfirlýsingu 5.desember sl. um að hún ætlaði einhvern tímann á næsta ári að draga úr skerðingum tryggingabóta aldraðra og öryrkja.Ríkisstjórnin sagði þessar ráðstafanir kosta 5 milljarða á ári. Að kvöldi sama dags var viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttur,félagsmálaráðherra um þessar ráðstafanir  í kastljósi Sjónvarpsins.Fréttakonan, sem ræddi við Jóhönnu, spurði með öndina í hálsinum: Og getur ríkisstjórnin  bara tekið 5 milljarða sí sona ( úr loftinu) Jóhönnu vafðist   tunga um tönn en hafði ekki fyrir því að leiðrétta fréttakonuna.Ljóst var, að samúð fréttakonunnar var öll með ríkisstjórninni en ekki  með öldruðum og öryrkjum. Fréttakonan hafði áhyggjur af því hvernig í ósköpunum ríkisstjórnin gæti látið heila 5 milljarða til aldraðra og öryrkja.Hún reiknaði greinilega með því að það yrði að reiða þessa peninga fram strax .Ef hún hefði unnið heimavinnu sína hefði hún komist að því, að þessar  væntanlegu ráðstafanir, sem átti eftir að  samþykkja á alþingi, hefðu ekki kostað  ríkissjóð nema 2,6 milljarða að  hámarki á árinu 2008.Og ef hún hefði kafað dýpra í málið hefði hún komist að því, að  þessar miklu ráðstafanir í þágu öryrkja og aldraðra hefðu ekki kostað neitt á árinu 2008. Samkvæmt könnun og útreikningum Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst aukast skatttekjur ríkissjóðs um 4 milljarða  á ári við það að draga úr skerðingu tryggingabóta aldraðra.
.
Björgvin Guðmundsson



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin Björgvinsson

Þetta er athyglisverð saga af 5 milljörðunum, sem kosta ríkistjórnina ekki neitt, þegar vel er skoðað.Takk fyrir góða grein í Mbl. í gær: ”Aðgerðarlítil ríkisstjórn.Lítið skárri en þegar Framsókn var i stjórn”.Ég vil einnig nota tækifærið og þakka fyrir hinar fjölmörgu kröftugu og góðu greinar á sl. ári bæði í dagblöðunum og hér á bloggsíðunni.Það er löngu ljóst að þú ert skeleggjasti baráttumaðurinn fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja á Íslandi.Með bestu nýárskveðju héðan frá Finnlandi, Björgvin B.  

Björgvin Björgvinsson, 3.1.2008 kl. 17:50

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eitt stærsta meinið er nálgunin við umræðuefnið. Það er tímabært að hætta að tala um aukna aðstoð við okkur aldraða.

 Við höfum setið eftir í kaupmáttaraukningunni og þess vegna er næsta verkefni að leiðrétta skekkjuna.

Síðan má geta þess að húsnæðis-og vistunarmál aldraðra eru í algerum ólestri og það er beint stjórnarskrárbrot.

Í aðdraganda allra kosninga hafa frambjóðendur ævinlega yfir sömu trúarjátninguna: Þetta er aðeins spurning um forgangsröðun !   

Árni Gunnarsson, 6.1.2008 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband