Föstudagur, 11. janúar 2008
Lífeyrir aldraðra hefur ekki verið hækkaður um eina krónu!
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,formaður Samfylkingarinnar sagði m.a. eftirfarandi í áramótaávarpi sinu:
Samfylkingin hefur á þessum fyrstu mánuðum í ríkisstjórn lagt megináherslu á velferðarmálin með sérstaka áherslu á umtalsverðar kjarabætur fyrir lífeyrisþega og öryrkja, aðgerðir í þágu barna og nýja sókn í jafnréttismálum. Þá er hafin löngu tímabær vinna við heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins í félagsmálaráðuneytinu. Á næstum mánuðum verður einnig gripið til aðgerða til að tryggja félagsleg úrræði í húsnæðismálum, þar sem staðan er algerlega óviðunandi fyrir ungt fólk og lágtekjuhópa.
Það er rétt,að Samfylkingin hefur lagt áherslu á aðgerðir i þágu barna og nýja sókn í jafnréttismálum.Einnig er endurskoðun almannatrygginga hafin. En engar kjarabætur fyrir aldraða og öryrkja hafa enn tekið gildi enda þótt 7 1/2 mánuður sé liðinn frá því að Samfylkingin kom til valda.Lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum hefur ekki verið hækkaður um eina krónu enn,fyrir tilstuðlan núverandi ríkisstjórnar. Það eina,sem hefur tekið gildi er að dregið hefur verið úr bótaskerðingu þeirra,sem orðnir eru 70 ára og vinna. Einnig hefur ríkisstjórnin lýst því yfir,að hún ætli fra 1.júlí n.k. að draga úr bótaskerðingu 67-70 ára sem eru á vinnumarkaði.En ekkert hefur verið gert í því að bæta kjör þeirra sem eru hættir að vinna en það er mikill meirihluti ellilífeyrisþega. Það á ekki að mismuna lífeyrisþegum. Það
á að bæta kjör allra lífeyrisþega jafnt.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Langar að árétta þetta sem þú bendir á varðandi lagfæring á skerðingu bóta vegna atvinnutekna. Lagfæringin sem er í gildi núna, er fyrir 70+ og gott mál það sem það nær. Hinsvegar spyr maður sig, þegar allur fjöldinn verður að hætta 67 ára á hinum almenna markaði (þar sem ég þekki til allavega) gera menn virkilega ráð fyrir að það sé valkostur að hætta að vinna í þrjú ár og byrja svo aftur þegar maður kemst á áttræðisaldurinn? Sér einhver þetta fyrir sér í alvöru? Ég er þarna að tala um hinn almenna vinnumarkað, kerfi ríkis- og sveitarfélaga er nokkuð frábrugðið. - Hinsvegar bindum við flest vonir okkar við Jóhönnu, sem er eina manneskjan í stjórnmálum, sem við getum vonast eftir að sjái hlutina með augum okkar. Nú eru lífeyrismálin að færast til hennar ráðuneytis.
Ellismellurinn (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.